Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Bankastjórar

og bleijur eiga eitt sameiginlegt. Það þarf reglulega að skipta þeim út.En það er þó sjaldan gert við það fyrrnefnda

Tilkynning

minning

tími til kominn

á færslu. Önnur myndasýning eða dvd hjá krökkunum svona til að hressa þá pínu við á erfiðum tímum. Annars er allt gott að frétta héðan Mikið að gera í vinnunni eins og vanter. Engin köfun farið fram síðustu daganna enda veður ekkert að bjóða þannig uppá slíkt en það kemur að því. Ætla ekkert að tala um síðustu atburði enda vita allir hvað er i gangi

 


Blautur dagur

hjá krökkunum i morgun svo blautur að ákveðið var að allir yrðu inni eftir fyrstu frímó.Í staðinn var boðið uppá bíó í löngu frímútunum Eitthvað var tölvan í bekknum að flippa svo kennarinn bað mig um að redda málum sem ég og gerði eftir þó smávesen. Sótti kellu eftir vinnu og átti svo við prentarafjandann en hann virkar að öllu leyti nema skanninn er enn með smá uppsteyt.En það hefst.

Rólegur dagur.

Ekkert farið ekkert gert nema slakað á Skrapp þó aðeins i Smárann í banka.Ekki til að taka út heldur borga einn reikning sem gleymdist þegar aðrir voru borgaðir. Nýja tölvan reynist vel og er öflug i öllu. Eina vandamálið var að koma prentarakvikindinu til að vinna með henni en nú er það leyst. Búinn að venjast því núna að vinna ekki um allar helgar kvöldin eða næturnar bara 8-16 sem er bara fínt. Aldrei aftur vaktarvinna.

Komin timi

á færslu með nýju tölvunni. Fór ekki framhjá neinum snjórinn í dag allavega ekki hjá börnum.Venjulega þarf að ýta sumum út með hörku en ekki i dag. Og engin læti voru aðeins kæti.Teikning var i dag hjá þeim bekk sem ég sé aðalega um svo ég kom heim með fulla vasa af teikningum sem krakkarnir vildu gefa. Fór svo með frænku litlu að aðstoða kaup á nýju rúmi vantaði bil undir flutninginn og minn er stór og plássið mikið Aðstoðaði skólasystur hennar með gemsann sinn en eitthvað hrundi i honum en mér tókst einhvernvegin að bjarga málum.

meira á morgun bless að sinni og góða helgi (þrátt fyrir gjaldeyrisþurrk og krónuvesen)


Ekkert

latur í blogginu hef bara ekki haft tima til að blogga en nú er aftur að myndast timi til þess á fullu. Enginn skóli i dag Bara fundir og undirbúningur undir morgunndaginn en þá er foreldradagur. Skrapp í köfunarferð um helgina sem gekk ágætlega Myndir koma fljótlega úr þeirri ferð. Ný tölva mun koma i hús i vikunni Sú gamla andaðist snögglega og vildi ei meir vafrast um á netinu eða gera neitt svo hún fékk frí.

Mikið

að gera,var innimaður sá um þá sem höfðu leyfi til að vera inni í dag.Svo tíminn leið hratt.Varla búinn að snúa sér við þegar dagurinn var bara búinn. Og sólin skein.

Litið

að ske fyrir utan vinnu.Enn rignir.Fór á netið i gær ætlaði að blogga en gleymdi því svo alveg.Útimaður i vinnunni i dag og var dreginn i allt. Í matartimanum var svo löng röð sem vildi að ég sæti hjá þeim Verð liklega að fá mér ritara sem tekur við sætispöntunum fram i timann. Köfun verður reynd um helgina næstkomandi ef ekki er vindur og með því. Annars er allt i þessu fína.

loks timi fyrir

smátíma fyrir tölvuna.Og bloggið.

Vikan hefur liðið á ógnarhraða Helgin nálgast óðfluga.Og nóg að gera í vinnunni. Maður er búinn að vera sálfræðingur sjúkraliði lögga huggari passari og trúnaðarvinur hjá krökkunum þannig að vinnan er ansi fjölbreytt.

Ekkert hefur verið kafað enda veðurfar undanfarið ekki boðið uppá slíkt. Er reyndar búinn að lofa mér í verkefni að redda igulkerum og öðrum sjávarkvikindum fyrir krakkanna sem biða óþolinmóð eftir pakkanum til að skoða. Ætla að stefna á það að redda því um helgina

Ef veður lofar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband