Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Norður-

Atlanshafið greinilega ekki nógu stórt ? Var nefnilega að bleyta örlitið í mér í gær undir sjávaryfirborðinu.Skyggnið var óvenjulítið nánast ekkert en það var ekkert að stoppa okkur.Nema það að á útleið í þessu pínulitla skyggni, var ég að svamla þegar bara búmm...synti,kafaði beint í fangið á öðrum kafara sem var á innleið á nákvæmlega sömu stefnu og ég Eitthvað sem ætti ekki að geta skeð miðað við stærð og dýpi sundlaugarinnar En skeði samt.Skemmdir urðu engar hvorki á mönnum né búnaði.Nú er spurning á að fylla út árekstraskýslu og senda siglingamálastofnun eða er það Gæslan sem ætti að sjá um svona mál hehehehe.....

Hvítur

litur er talin góður litur í brúðkaupi. Brúðurinn er yfirleitt klædd í hvítu sem á að tákna hreinleika og fegurð. En hvernig stendur á því að brúðguminn er næstum alltaf klæddur í svörtu Hvað ætli það tákni ?Woundering

Litli stubbur

hann frændi minn er þessa stundina að rústa tilveru systur sinnar og frænkna.Þær tóku sig til og kölluðu hann Fíat litla sem fór í  taugarnar á honum Þótt hann væri yngri og minni tók hann sig til og notaði supermannkraftanna sína (sem er í uppáhaldi þessa stundina) og rústaði brúðuhúsi systur sinnar,sem hún hafði eytt miklum tíma í að koma upp. Sama var uppá teninginum í sambandi við hinar tvær frænkurnar Hann gjörsamlega lagði herbergi þeirra í rúst og neitaði svo að taka til eftir sig. Stríðsástand rikir nú og ekki séð að neinn friður verði komin á fyrir laugardaginn en þá á sá stutti afmæli. Þær dömurnar hafa allar hringt i mig til að miðla málum en þar sem ég er í vinnunni get ég lítið gert. Systir hans vill þessa stundina helst afhausann og selja hann í Bónus en hinar vilja nú ekki ganga svo langt bara selja hann til útlanda nema hann taki til.

En eins og einhver sagði forðum Svona er lífið 


3 bráð-ónauðsynlegar

staðreyndir:

 Allir forsetar USA hafa þurft að nota gleraugu þó að sumir hafi ekki viljað bera þau á almannafæri.Útskýrir kannski vangetu Bush yngri að sjá að bókin var á hvolfi þarna um árið.

Kveikjarinn var fundin upp á undan eldspýtunni.

Og á meðan þú last þetta fæddust 10 einstaklingar á þessari jörð og 3 kvöddu hana.


Netið kemur

upp um mann.Fékk meil um daginn sem tók smá tíma að fatta frá hverjum það var.En svo kviknaði á ljóskastaranum.Þetta var þá gamall vinnufélagi og svona hálfgerður klíkufélagi frá fyrri tíð.Vorum 4 sem vorum algjörar samlokur,unnum saman ferðuðumst saman skemmtum okkur saman eða eins og sagt var algjörar samlokur.Svo einn daginn fór ég að flakka um heiminn og missti allt samband. Þar til um daginn þá birtist meilið Hann var að vafra á netinu og datt inná mig svona óvart og hafði samband og ákveðið var að hittast,öll gamla klíkan. En reyndar svindluðum við aðeins því við tveir hittumst í gær yfir súrmat og rauðvíni. Höfðum margt að segja en vissum ekki hvorugur hvar ætti að byrja. Yfir 20 ár síðan við hittumst síðast.

Svo fékk ég dularfullann pakka í póstinum.Sent að utan,frá veldi Danadrottningar.Innihaldið var ekki sprengja heldur innihélt pakkinn gamalt blað með frásögn um íslendinga þess tíma (1838) fróðlega. Þetta var getraunavinningur frá honum Villa bloggvini.Ég tók þátt í getraun sem hann var með í gangi,skaut í algjörri blindni en greinilega rambað á rétt svar.

Svo spáir hann tveggja tölu frosti framundan Eins gott að ég á góðann kuldargalla Annars flý ég bara í hitann neðansjávar hehehe....


Það er þetta

með hjónabandið.Það er ekki bara það þar til dauðinn aðskilur.Tengdamamma fylgir pakkanum hvort sem þið eigið samleið eður ei hehehe......Smile........

Spaugstofan

er löngu orðin útbrunnin og úrelt.Orðin risaeðla í risaeðlunni og mætti alveg fara að slá botninn í þetta.Flestir orðnir þreyttir á þeim. Mætti koma ný andlit með nýja sýn og nýja brandara.Allavega er þetta mín skoðun. Þetta eru orðnir útbrunnir brandarar útbrunnir karekterar sem eru ekkert fyndnir lengur,bara þreyttir.

Litli frændi

gerði mömmu sína gráhærða í gærkvöldi Tók uppá því að ganga á allar hurðir og læsa þeim og engin lykill til að hurðum. Hafði samband við mig en það var litið fyrir mig að gera annað en að hringja á neyðarvakt og fá mann til að dýpka upp lásanna. Hann skipti í leiðinni um lása og húna svo nú eru til lyklar ef svo skyldi fara að sá litli læsi öllu aftur sem er engin spurning hvort heldur hvenær. Annars allt tíðindalaust. Verð á stuttri vakt í dag eða til 1800. Annars er þetta veður útifyrir svona ekta inniundirsængmókveður og bara synd að þurfa að vinna og það líka um helgi að auki. Reyndar er ég farin að íhuga alvarlega að hætta vaktarvinnu Það hefur bæði kosti og galla og gallarnir eru næturvinnan og helgarvinnan auk þess að geta átt von á því að vera kallaður á aukavakt hvenær sem er. Kostir eru kannski meira frjálsræði en samt.....


Íslensk útgáfa af

islensk útgáfa

Kíkti i Hvassahraunið

fyrir vinnu.Fórum þrír.Einn var bjartsýnn.Mætti á gömlum trabba.Okkur hinum leist ekkert of vel á það Sáum fram á ýtingar og mokstur fyrir og eftir köfun. En ekkert skíkt kom uppá Trabbinn flaut ofan á sköflunum og fór þetta léttilega. Við tveir á jeppunum vorum í meiri vandræðum með að komast að sjó.Útí var farið og í smá sund til að byrja með ca 50-70m út til að komast á dýpi. Fórum niður á 20 metranna til að byrja með en vorum brátt komnir á 30 metranna. Fundum klett með gati og ég ákvað að renna mér í gegn. Eitthvað klikkaði,gatið var aðeins minna en ég hélt Köfunargleraugunum að kenna,þau stækka allt um 25 %. Ýrskur rauf hljóðlaust nágrennið og síðan allt stopp.Kúturinn fastur uppundir og eina leiðin var að segja bless við kútinn og vestið.Losaði vestisfestingar og skreið úr gatinu Tróð mér svo i vestið aftur og áfram með köfunina. Einn brunaði svo á botninn á fullri ferð beint á igulker svo hann var líkari broddgelti er hann lyfti sér upp aftur. Trabbaeigandinn var sá eini klakklausi i allri ferðinni. Mætti svo á kvöldvakt i frekar letistuði enda helgi.Framundan er 4 dagar á vakt,barnaafmæli og fríhelgi.

Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband