Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Nóg

að gera í vinnunni.Dagurinn i gær byrjaði á því að róa niður fáein börn sem trúðu því statt og stöðugt að heimsendi væri á næstu grösum. Sama var á teninginum i morgun en það lagaðist fljótt og vel. Allt stefnir á köfun um helgina og mun myndavélin ekki gleymast í þetta sinnið. Og týnslupokinn tekinn einnig með Glugginn loksins kominn upp og billinn farinn í smá uppfærslu Er á lánsbil á meðan en fæ hinn liklega seinnipartinn á morgunn.

Svör við

klukki:

4 störf: afgreiðsla í verslun,lagermaður,dyravörður,skólaliði.

4 staðir sem ég hef búið: Þykkvabæ,Birkimelnum,Fýlshólum,Mariubakka

4 tvþættir:CSI,Robin Hood,Fréttir,og Simson

4 staðir sem ég hef farið í fríum: Rússland,Frakkland Kanada,Filippseyjar

4 netsiður: blog.is visir.is gmail.com,dv.is

4 bækur mest lesnar: Egyptinn,(reyndar klikka ég hér les litið bækur þessa stundina)

4 bilar: Rover Volvo Nissan og Púsa

 


Ætlaði í

kaf en endaði í Rúmfatarlagernum og Smáranum. Enda ekkert veður til köfunar.Eftir verslunarleiðangur var bara hangið yfir imbanum og tölvunni Þannig með öðrum orðum haft það rólegt. Var klukkaður og ætla að svara því bara í næstu færslu. Tounge

Tími á blogg

þó ekkert hefur skeð siðan síðast Búinn að vera 2 vikur í nýja djobbinu og sakna þess gamla ekki neitt.Skrapp í Atlanshafið og aldrei þessu vant gleymdi ég að taka myndavélina með mér en vinn það upp seinna.Róleg helgi hingaðtil veit ekki enn um morgundaginn Þó held ég að hann sunnudagurinn verði bara rólegur.Er bara að fíla það í botn að vinna ekki um allar helgar og eiga kvöldin alveg frí Meiri timi fyrir ættingja og vini.

notaði

góða veðrið eftir vinnu og 2 fundi og skellti mér til sunds í Hvassahraunið Náði mér í fáeina hörpudiska á grillið. Hef svo bara haft það rólegt heimavið við tölvu og imbakassann.

Svona er lifið i dagCool


Mætti á næturvakt

í gömlu vinnunni Er að borga skuld eða þannig og beint svo í þá nýju en það er bara til kl 1600.

Er að venjast því að vinna bara 8 tímanna í stað 12 eða fleiri og er bara ánægður með að þurfa ekki lengur að vinna helgar og næturvinnu. Nú er það 8-16 rútínan. Hitti eina af litlu frænkunum í vinnunni i dag Reyndar er hún orðin 9 ára svo kannski ekki litil lengur þannig séð. Reyndar er ég orðin frændi allra þarna. Og jafnvel afi sumra hmm ég er ekki svo gamall. Ein litil vildi að ég kæmi bara með sér heim,mamma hennar væri fráskilinn og það væri nóg pláss. Minnir mig á þá brandara : Fann þennan,mamma má ég eiga ?


Helgin að taka enda

og önnur vinnuvika framundan. Laugardagurinn fór allur í afmælisveislu fyrir austan fjall í köldu blautu veðri en það ringdi af krafti. Dagurinn í dag fór í buslferð í Hvalfjörðinn þar sem dundað var við að elta fiska á 14-15 m dýpi í litlu skyggni en nokkuð sléttum sjó.Það má segja að það verður tvöfaldur vinnudagur hjá mér á morgun 8-16 á nýja staðnum og svo eitt stykki næturvakt á þeim gamla uppí skuld. Ekki spennandi.

Fyrstu viku

í nýrri vinnu lokið. Og allt gengið bara vel.Reyndar enn dáldið óvanur normal vinnutíma en það venst.Er núna að fara í barnaafmæli austur fyrir fjall og fann smásmugu fyrir stutt blokk svona til að láta vita að maður sé enn á lífi.

Meira síðar..


Búinn

að vera bísi síðustu vikurnar.Parisaferð í viku bústaðarferð í viku,stórafmæli í framhaldi af því og skírnarveisla Og næsta helgi fer líka undir bæði skírn og afmælisveisla Og allt þetta útá landi.Að auki skipti ég um atvinnu og hef haft nóg að gera við að læra í sambandi við það djobb svo eiginlega litill tími hefur farið í hafsbotnarsprikl og blogg en er að vinna í því að lagfæra það hehehe....

Kominn

í borgarmenningunna aftur eftir vikufrí í sumarbústað þar sem engin tölva var með í för.Spilað var ótal sinnum veiðimaður í staðinn við frænkustóðið og legið í bleyti í heita pottinum. Milli þess var farið í göngu og ökuferðir. Á kvöldin var svo spilaður póker uppá eldspýtur og bæði unnið og tapað í þeim leik.

Teikniblokkir voru mikið notaðar og trampólinið á staðnum var ofnotað það að segja af frænkunum.

Semsagt núna er bara að venjast aftur borgarstressinu...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband