Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Arabiskur kisi

tilbúinn til starfa:

arabiskur köttur


Gamalt grín

sem var í upprifjun.

1. Fyrir nokkrum árum vorum við nokkrir sem köfuðum dálítið stíft saman.Við tókum bústað á leigu og náttúrulega nálægt fjöruborði. Milli þess sem grillað var og legið i leti í heita pottinum var farið í sjóinn. Í næsta bústað voru hjón sem eitt skiptið vöknuðu upp við það að billinn þeirra hafði einhverra hluta vegna runnið eftir fjöruborðinu sem var í halla og var hálfur kominn útí Á sama tíma var að falla að. Og stórstreymt. Þau vissu að við værum í köfun enda fylgst vel með þegar við vorum að príla á land eða fara útí. Óskuðu eftir aðstoð sem var ekkert mál nema það að í byrjun byrjuðum við á því að labba út í fjöru með stóla og settumst makindalega niður með popp og bjór. Og fórum að horfa á bilinn hverfa æ meira í djúpið. Hjónakornunum leist ekkert á málið,héldu að við ætluðum aðeins að horfa á en þegar þau voru næstum komin með tárin í augun og komin á hnéskeljarnar rukum við til hentumst í gallanna og billinn var á þurrt kominn eftir ca klukkustundarverk.

2. Annað sem tengdist köfun.. Og líka bill sem kemur við sögu Vorum að svamla fyrir vestan. Einn var á gamalli Lödu sem hann skildi eftir í fjöruborðinu, í halla ,í hálku. Kafað var og á bakaleið að landi komum við að neðansjávarflaki.Sem var bill og var Lada og með sama bilnúmeri sem einn í hópnum kannaðist vel við.

3.Fyrir vestan,nánar tiltekið Djúpuvík.Fundum akkeri gamalt í höfninni rétt við trébryggjuna.Ákveðið að ná því upp. Festingar settar í akkerið og upp í bát sem ekki hafði það að lyfta því. Þá kom einhver á stórum upphækkuðum með risaspili framaná. Og vildi aðstoða. Akkerið tengt í spilið og viti menn það leggur af stað uppá yfirborð. Þegar ferðin upp var cirka hálfnuð heyrðist urg og læti og síðan smellur. Akkerið kemur niður á húrrandi ferð ásamt spilinu og hálfum bíl sem hafði klofnað í miðju. Á endanum kom stærri bátur á vettvang sem bæði náði upp akkeri spili og hálfum bilhluta.


Einn dagur

í viðbót og þá er allt komið úr boxum og kössum á þá staði sem innihaldið á að fara á.Nema tölvubúnaður og fylgihlutir Tek helgina í það í rólegheitunum. Annars er það Sorpa sem á hug minn allann með alla þessa tómu pakkningar.Klára það á morgun. Þjóðskrá búin að fá sitt svo nú er þetta allt að smella í lokagírinn, og ég get komist aftur á botninn það er að segja hafsbotninn. Kella búin að vera iðin að koma skósafninu á sinn stað Alveg ótrúlegur fjöldi skópara kom í ljós.Fæstir notaðir.Og alltaf bætist við Annað með okkur karlpeninginn Kaupum skó þegar á því þarf að halda hehehe.

Við erum

líka til....(.aðeins að hjálpa ísbjörnunum..)

líka til.


Góð mynd

lestarferð

Þurfti

að taka bensín og útkoman var þetta

bensin rán


Nú væri ég sko

alveg til í að fá nuddara eftir vaktina.Þetta púl, að setja búslóð í bíl,taka úr bíl og skokka með það uppá 3 hæð kallaði á allúrat þá eingöngu á hraðann hjartslátt, blástur sem hvalur hefði verið stoltur af og fáeina lítra af efni  því sem daglega kallast sviti. En núna er það harðsperrurnar sem mættar eru á fullu stampi,svo nuddari væri alveg vel þeginn hehehe. nudd

Önnur þraut

svona af því tilefni að það er sunnudagur og allir þungaflutningar eru yfirstaðnir:

Skrifað á venjulegan hátt: Mánudagur

Afurábak kom þetta svona út: rugadunáM

Olboginn birti þetta svona:mhjklnææ,

Ennið kom með þetta birtingaform: tgjhuyiilf

Bossinn vildi blanda sér í málið og kom með þetta: lfdiorunsgfiopasd

og tungan,henni leist ekki á leturásláttarborð tölvunar og neitaði allri samvinnu.

Nebbin kom og reddaði þessu með : mánudagur


Flutningum lokið

Laugardagurinn fór í flutninganna.Þrjár ferðir þurfti + jeppi. Eða þá semsagt 3 og hálf.Gekk furðuvel að koma öllum þungahlutunum uppá 3 hæð. Byrjað var um kl 10:00 og allt komið í nýja hýðið um kl 17:00. Svo var sorterað hvað ætti að fara í geymslu og hvað Sorpa mætti fá og framvegis. Í morgun var svo eldsnemma byrjað á því að þrífa gömlu,setja upp myndir og byrjað á að raða í eldhús,skápa og bað. Nánast búið um hádegið. Byrja í vikunni að koma tölvunni í samband svona í rólegheitunum.Mætti svo á vakt ca klukkutíma á eftir áætlun. En það var í góðu búinn að láta vita um það áður.

Þraut dagsins

skrifað nafn: Ólafur

afturábak: rufaló

olboginn skrifaði: kqastsg6gya

ennið: qo563owe

en nebbin kom með :olafurr

tungan sleikti rykuga ´bragðvonda lyklaborðið Sick og kom með hjugiup sem niðurstöðu.

Þá vitið þið það...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband