Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Mætti klst of

seint á vaktina en löglega afsakaður.Var að láta hamra á mér hjá sjúkró sem að þessu sinni beitti nýjum vopnum á mig Í stað venjubundinna gestapótrixa að hætti spænska rannsóknarréttarins mætti hann fullvopnaður StarWarsútbúnaði. Laserinn var hans uppáhald í dag Ekki tókum við þó neina þekkta syrpu úr StarWars heldur var það bara bekkurinn þar sem ég raunar steinsofnaði. Og það er kjaftæði ÉG HRAUT EKKI NEITT Hann var eitthvað að skjóta á það að ég hafi hrotið á við trukk. Og ég sem hrýt aldrei......Whistling

Þá kemur

myndspurning dagsins Hvaðan er þetta ? (á að vera létt enda mánudagur hehee)

Helgin

sem átti að vera afslöppun fór í allt annað. Koma gemsakvikindinu í skilning um það að vera ekki að slökkva á sér í tíma og ótíma var eitt. Svo var maður dreginn í kaffiboð í gær og í kjölfarið beint í matarboð svo maður kom heim á blístri. Legið á meltunni yfir downloaduðum kvikmyndum af öllum gerðum aðeins frameftir nóttu svo erfitt var að vakna í morgun. Löng stutt vakt í dag og á morgun 12-22+þjálfi.

Ein erfið vonandi

hvaða kirkja er þetta eða þannig sko ?

1Cool


erfiður gemsi

Búinn að vera í gemsavandræðum alla helgina. Gemsinn tók barasta völdin,slökkti á sér allt i einu og neitaði allri samvinnu, svo ekkert var hægt hvorki að hringja né svara. Engin skýring á háttalagi Var að því komin að henda kvikindinu þegar hann hrökk allti einu aftur i samband.Það er svona þegar tæknin eignast sitt eigið líf lokar bara á eigandann.

hef

aldrei skilið þessa ástriðu Spánverja með þetta nautaat. Hvað er svona flott við þetta? Dýr pyntað til dauða. Ég brosi alltaf alveg út að eyrum þegar tudda tekst að taka nautabanann í smá kennslustund í hörðum hornum. Aðhverju er þetta ekki stundað einsog á tímum Krítverja dansað við nautin? Væri meira spennandi og gæti orðið olympiugrein. Já eða nautakossar? 12 stig fyrir besta blauta kossinn í stað dráps. (ég gæti þá kannski komist á verðlaunapallinn hehehe, hef reynslu)

Sem betur fer eru Spánverjar að kveikja á perunni og eru að hætta þessu smásaman

El toro....


mbl.is Nautabani slasaðist alvarlega á Fallas-hátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert

frítt í þessum heimi annað en árlegt hringsólið í kringum hnött þann sem við nefnum sól.

svona í vikurlok

ÞETTA FJALL HEITIR ? OG ER HVAR Á LANDINU ? fjall

Bjó erlendis

i eitt ár næstum nákvæmlega uppá dag. Starfaði sem öryggisvörður að vakta fyrirtæki og stofnanir. Þar úti vorum við þrælvopnaðir,haglabyssa í statífi við framsæti og báðir vopnaðir byssum Hann var af gamla skólanum hafði Colt 45.Ég Berettu 9mm.Flottur á því. Aðeins einu sinni dró ég upp byssuna og miðaði á mann sem gafst upp strax. Og hef verið þess fullviss að ég hefði skotið ef hann hefði ekki gefist upp. Hann hafði farið inná byggingasvæði ekki einsamall því með í för var stelpa ca 11-12 ára dópuð.Lögreglan sem tók við fór með hana á sjúkrahús og þar fannst leyfar af hinu svokallaða nauðgunarlyfi Gæjinn fékk 16-17 ára dóm Læknirinn fékk 7 ára dóm fyrir að ávisa á lyfið auk þess að missa læknaleyfið. Hér hefði þetta liklega verið fáeinir mánuðir samkvæmt réttarkerfi því sem við búum við. Vildi bara segja frá þessu i kjölfar herferðar þeirrar sem er í gangi Þetta lyf er ógeð sem ekki á að vera í umferð.

svo er hér ein

svona í vikulokin,ætti að vera létt Hvaða hús er þetta? Er í Reykjavik.

hús  Góða helgi öll sömul...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband