Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Var að fara yfir

gamalt logg úr köfuninni.Síðan 1997.Þá í febrúar fórum við þrír saman vestur til að kafa á nýjum slóðum. Einn daginn var synt út og kafað í sól og blíðskaparveðri. Allt gekk eins og átti að ganga þarna niðri og fórum við niðrá 27 metra. En þegar upp var komið var greinilegt að við vorum komnir langt út auk þess að svarta þoka var komin. Sáum ekki rassgat (enda klæddir í þykka þunga köfunargalla) Eftir smá svaml í þá átt sem haldið var að væri til lands komum við að bát sem lá við akkeri,sportbátur erlendur.Engin var uppivið og engin svaraði svo við klifum bara um borð bönkuðum uppá lokaðar dyr eins og góðum islenskum sið sæmir en engin hreyfing. Opnuðum og litum inn. Á móti kom þetta skarræðis öskur úr kvenmannsbarka og rétt seinna kom þessi svakalegi bassi greinilega úr barka karlsmanns. Síðan orðaflóð á spænsku. Sem við náðum ekki að skilja nema í takmörkuðu lagi. En þegar áhafnameðlimir höfðu jafnað sig,og fullvissað sig að við værum ekki sjóræningjar sérsveitamenn eða stórhættulegir hryðjuverkamenn heldur áttavilltir og hálfheyrnalausir( eftir alla tónhæðarskalan sem tekin var) islenskir kafarar,var tekið á móti okkur með mat og drykk og okkur skilað í land morguninn eftir. Það skeður margt í köfun.  buddyinn

Labbaði

inn í tölvuverslun og gekk út fáeinum mínútum seinna með glænýja fartölvu Svona skyndihugdetta sem framkvæmd var svona um leið Var annars á leiðinni að láta smyrja bilinn. Þetta á að vera svona skyndigjöf til kellunar sem á reyndar fartölvu fyrir en sú er eitthvað lúin Vill ekki fara á netið,tengjast prentaranum nema með hörku og annað slíkt Nánast eingöngu nothæf í kapla og minni ritvinnslu svo....tími á nýja. Smurningurinn frestaðist til morguns.Fórnaði bilnum fyrir fartölvu,það er klikkun. Kannski á morgun fæ ég aðra skyndihugmynd um eitthvað á leið i smurningu hver veit.

Greinilega ekki

sami metnaðurinn hér á landi og á indlandi:

hjól  vs  hjól 2


Var

ekkert á því að lúra eftir næturvaktina enda nóg að snúast.Ýtti við pappirum frá bankanum til að koma hreyfingu á fasteignamálin sem voru i bið.Salan hjá mér er á endapunktinum en allt er stopp í sambandi við mín kaup því bankinn sendi ekki í tíma inn pappíra til sýslumanns til að láta stimpla Gerðu það loks i dag. Kellan á brátt stórafmæli reyndar i næsta mánuði,en ég og aðrir erum farin að undirbúa ýmislegt í sambandi við það. Ein af frænkunum kom með þá hugmynd að bjóða uppá þyrluflug,útsýnisflug.Náttúrulega fylgdi það pakkanum að hún fengi svo að koma með Verð að játa að hugmyndin er góð og að sú stutta fær að koma með. þyrla

Netdaður

Gæti verið annað orð yfir blogg......

ein

góð frá den.Sem var að rifjast upp.Og enn er hlegið að.Vinnuveitandi kærustu sem var þá bauð starfsmönnum og mökum í dagsferð austurfyrir fjall nánar tiltekið á slóðir Njálu. Einn af stöðunum sem komið var á var safnið á Skógum. Allir stóðu i hóp og hlustaði á smá fyrirlestur um muni safnsins. Ég og mín stóðum hlið við hlið.Datt í hug að lauma hendinni afturfyrir og taka utanum skutinn.En á sama tíma horfði ég auglitis til auglitis við kærustunna beint á móti mér Hún hafði nefnilega fært sig án þess að ég tæki nokkuð eftir og í stað hennar hafði  önnur komið á sama stað og án þess að ég hefði tekið eftir Þannig að á móti horfði ég á kærustuna með morðglampa í augunum og er ég leit til hliðar leit ég á bláókunnuga stúlku sem var eitt spurningarmerki i framan. Það má geta þess að ég var fljótur að draga hendina til baka. Ég slapp þó alveg óskaddaður frá þessu öllu saman

Helgin liðin

og vinnuvika að byrja. Helgin fór í púl. Aðstoðaði við húsaflutninga á laugardaginn Dæmið var þriðja hæð og mjög þröngur stigagangur.En allt rataði upp með svita og miklu pústi Að vísu fór rúmið aftur niður sem var í king size stærð Eftir að hafa dröslað því upp með svita og látum var tilkynnt að því ætti að henda. Aðeins of seint.En það fór fljótu leiðina niður ,gegnum svalahurðina og framaf. Sunnudagurinn,gærdagurinn fór að púsla stofuborði og stólum saman sem komu i einingum Tók hálfan daginn. Til að hressa sig við var svo skellt sér í Atlanshafið í smá sund innan um fáeina ufsa og karfa. Scuba Diving

Lífið

er eins og teningur Maður veit aldrei hvað kemur upp

Var

að horfa á spaugstofuna og ég hló......ekki

Svokölluðum

Nigeriupósti og annar póstur sama eðlis hefur fjölgað frá því síðast um 11 stk. Er ekki hægt að setja einhverja stöðvun á svona lagað ? Ég er farin að halda að ég sé með einhverja segulvirkni sem dregur þá svona að mér. Oft eru þetta þeir sömu hissa á því af hverju ég svari ekki Einn var með hótun um að beita svartagaldri ef ég tæki ekki milljónirnar hans en snarhætti þegar ég svaraði og hótaði að senda islensku jólasveinanna á hann Hann hefur ekki sent neitt til baka. Hefur líklega haldið að hinir islensku jólasveinar væru sérþjálfuð velvopnuð víkingasveit sem myndi ryðjast inn til hans einn daginn.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband