Leita í fréttum mbl.is

spurning á mánudagsmorgni

Hver er maðurinn á myndinni? Smá tips ( svo maður notar smáenskuslettu) Hann var frægur fyrir eitt á árum fyrri heimstyrjaldar.

red-baron


041107

Svaf í einum dúr til kl 1600.Farið í frænkuheimsókn þar sem reyndar allar þrjár voru samankomnar.Ein sú yngsta hafði dundað sér að búa til hring úr smáskeljum og vildi endilega gefa mér sem ég náttúrulega þáði. Svo skiptust þær á að mata mig með nammi og ís enda nammidagur/kvöld. Dútlaði pínu við köfunargræjurnar stillti og pússaði og yfirfór slöngur og loftkerfi Betra að hafa græjurnar í lagi.Mætti svo á næturvakt þá síðustu í þessu holli jibbí.Svo verð ég bara að segja að hinn 3000 ára gamli Tut lítur bara þokkalega út eftir allann þennann árafjölda.

Tut

 


Ekkert að ske á

næstsíðustu næturvakt. Greiddi reikninganna alla í dag öllufremur í gær laugardag.Ætlaði samt ekki að nenna eftir næturvakt en maður verður víst að greiða reikninganna. Lenti í engri biðröð,var annar í röðinni.Gerði ekkert af mér eftir það annað en að lúra pínu yfir imbakassanum og hélt svo áfram að sofa.Annars sofið óvenjumikið eftir síðustu vakt því yfirleitt þarf ég ekki meir en 2-3 tíma en nú fór megnið af deginum í svefnheima. Ætla að vera þurr fram að næstu helgi en þá á ég frí Þá á ég við þurr útvortis.Eða með öðrum orðum,ætla að yfirfara allann köfunarbúnaðinn laga og stilla og gera klárt fyrir helgina ef ske skyldi að maður færi í kaf. Annars er þessi lægðaumferð að gera það að verkum að ekkert er hægt að kafa Nema á Þingvöllum sem aldrei svíkur hvernig sem veðrið er.

Góða helgi (það sem eftir er af henni)


Þriðju

næturvakt senn að ljúka á laugardagsmorgni.Og tvær eftir.Veður ágætt en kalt.Kella ánægð í nýju vinnunni og vill fara að byrja á því leiðilega verki að pakka niður húsbúnaði svona smásaman. Eitt það leiðilegasta sem til er í heimi en samt nauðsynlegur fylgipakki flutninga.

Dagurinn í dag

fór eftir vinnu eiginlega í ekki neitt. Þurfti aðeins að skreppa í Árbæinn fór úr ágætu veðri í vesturbænum í hávaðarok og rigningu í árbænum. Farið til baka og svo uppí breiðholt þar sem bara var rigning.En lenti í staðinn í mikilli bílatraffik alla leiðina. Þaðan beint á vakt.Frestaði þeirri aðgerð að borga reikninga til morguns Kannski minni bankaumferð á morgun. Búinn að skrifa undir köfunarsamning og endursenda út. Svo það mál er í höfn. Kaupsamningur á næsta leiti og eitt það leiðilegasta,að pakka niður og afpakka svo aftur. En það er bara eitt af því sem er fylgifiskur íbúðaskipta. Og alltaf er sama góða veðrið á skerinu rigning og rok. Bið að heilsa að sinni.

Fékk

þykkann póst í dag. Það var ekki eingöngu íbúðarkaup í gangi í dag heldur líka kom þykkur pakki með póstinum Samningur var það uppá 40 síður. Um tryggingar, laun, vinnu,sýningarrétt og greiðslur í sambandi við það.Þetta var í sambandi við þennan væntanlega köfunarleiðangur í sumar næskomandi.Í sambandi við þennan kafbátaleitarleiðangur sem mig minnir að ég var aðeins búinn að nefna áður.Eiginlega er sjálfur samningurinn ekki nema 11-12 bls rest er lögfræðiseitthvað.....Þetta er vegna þess að sjálft Discovery channel ætlar að vera með og filma allt batteríið.Að sjálfsögðu skrifar maður undir enda frí ferð og uppihald.Semsagt eins og einhver sagði,miklar breytingar framundan og um að gera að bara njóta þess..Mættur á næturvakt svo sofið vel og engar hrotur og læti.Smile

Það

kom að því,búinn að kaupa.Gerði tilboð í gær í eina og fékk gagntilboð sem ég ákvað að samþykkja í morgun.Svo nú er það mál úr sögunni.Bara á eftir að fínpússa afhendingardag því eigendurnir eru að fara af landi brott og vilja því flýta afhendingardegi sem þýðir að ég þarf aðeins að flýta ferlinu hjá mér svo greiðslur gangi upp í samræmivið það Er að fara í langa næturvaktartiltekt frá og með deginum í dag Næturvaktir næstu 6 daga í það minnsta og verð að viðurkenna að ekki hlakka mér til.Fæ svo aðeins 1 dag til að svissa yfir á dagvakt sem mér finnst of stutt. Svo er síðasti dagur kellu í vinnunni i dag,byrjar i annarri strax á morgun.Nýr yfirmaður tók við og þá sögðu flestir upp en hún fékk strax vinnu á öðrum stað. 

Tíu litlir....framhald

á hvolfi Þessi fór á hvolf svo eftir urðu þeir fimm.

 

 

 

 

 

 

 

Þessi villtist í þangskógi svo eftir voru fjórir.

 

 

 

 

 

 

 

lendingÞessi fór í busl og læti og vinur hans fór að ýta af kæti

 

 

 

 

 

 

Svo eftir  voru tveir

 

 

zzz zzz zzzzzAnnar varð dáldið þreyttur svo þessi sló bara botninn

c_documents_and_settings_smfr_borgarholtsbrau_my_documents_botninn_sleginn.gif


Tíu litlir kafarar..

fóru saman í ferð.Þessi komst ekki niður

grunn köfun svo þá voru eftir níu.

 

 

 

 

 

 

 jibbíiii

Þessi stökk eitthvað út í bláin svo eftir voru átta. 

 

 

 

 

 

 

þingvellir Þessi fór að telja peninga og þessi  að strauja þvott.Svo eftir voru sex.


Nú er það svart

það að segja fyrir einn góðann vin.Búið er að leggja málið í dóm hjá prakkaraliðinu og málið dæmt. Hann á afmæli fljótlega meira að segja stórt.Fertugsafmæli. Á að fylla kauða markvisst svona þegar líður á. Gæjinn dettur útaf að venju (reyndar fastur liður) Hann hefur garð svo hugmyndin er að bera sófann stólinn eða það sem hann sofnar á út í garð ásamt húsgögnum,koma þeim eins fyrir  og fylgjast með þegar hann vaknar hvernig viðbrögðin verða.

Hann lenti i svipuðu þegar hann var þritugur nema það var haldið á Filippseyjum Þar var kauði borinn út,settur við skógarjaðar og vaknaði þunnur við hliðina á eðlu sem búinn var að koma sér fyrir á bringunni á honum og rak út tunguna um leið og hann vaknaði Öskur af óþekktri bassaraddartíðni barst um allt nágrennið og hafa heimamenn aldrei heyrt annað eins fyrr eða síðar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband