Leita í fréttum mbl.is

Loksins búið

að ganga frá kaupsamningi og afhendingardagur komin næstum á hreint. Að vísu er fastur dagur á samningnum en þar sem seljandi fer út um áramótin breytast dagsetningar örlitið og verður fyrr.Sem þýðir að ég þarf að afhenda mína pínu fyrr.Sem er í góðu lagi.Engin lán svo ekki lendi ég í neinum hækkunum. Ný slanga komin á köfunarbúnaðinn og stefnt á botnferð föstudag sem er stuttur frídagur eða þannig. Frænka með heimaverkefni kallaði á aðstoð og var svo að reyna að stíla á að ég gerði svo verkefnið en ég var skarpari en skólakrakki og lét hana gera 99%.....ok 80% af verkefninu. Fékk svo nýjan gemsa í afmælisgjöf. En málið er að ég á ekkert afmæli,ekki fyrr en í desember en þetta var svona fyrirfram afmælisgjöf. Svo nú hef ég tvo. Svo stendur til að mæta á starfsmannafund i fyrramálið strax á eftir næturvakt.

Skellti mér á botn

Norður Atlantshafsins eins og oft áður. Tíðindarlaust þar til á ca 15m dýpi,en þá heyrðist allt í einu hvisshljóð í loftkerfinu Sem þýðir venjulega vandræði.Enda fáum sekúndum seinna kom hvellur og loftslangan í tætlur. Lítið annað að gera en að koma sér uppá yfirborðið.Reif af mér heilgrímuna og fékk síðan loft frá köfunarfélaganum sem var eiginlega í meiri sjokki yfir þessu en ég enda gamall í hettunni og með meiri reynslu í vandræðahlutum. Þar sem farið var eftir reglum um hraða fór ég ekkert í klefann. Búinn að skipta um slöngu og tilbúinn í næstu. Fasteignasalan hafði loks samband Kl 10:00 í fyrramálið á loks að skrifa undir kaupsamninginn. Tími til kominn.Fer beint af nætuvakt.Og verð á næturvöktum næstu 4 daganna.

Ætla að

byrja á því að svara spurningunum sem ég fékk í síðustu færslu.Málverkið er eftir Hjörleif og klæðaburður minn er vegna þess að ég var að leika í skólaleikriti sem konungur.

Gærdagurinn fór í smábusl í gjánni Silfru áður en það var farin verslunarleiðangur í Elkó Rúmfatalagerinn og Hagkaup Mestur tíminn fór þó í að vera fastur í traffik.Heimsókn farin til tveggja frænkna sem notuðu tækifærið og buðu í mat eftir að hafa lofað öllu fögru um að vera hlýðnar og góðar  það sem eftir væri árs Pabbinn tók því nú léttilega enda kom á daginn að seinna um kvöldið var búið að brjóta alla samninga. Farið í háttinn um kl 0300 e.m vaknað 0800 og lúrað til hádegis. 


Fríhelgi framundan

eða það hélt ég þar til ein litil frænka plantaði sér við símann og lét í sér heyra.Búinn að skipulegga morgundaginn Fara í verslunarleiðangur að skoða og kaupa,undirbúningur fyrir komandi jól.Reyndar var mamman búin að planleggja dagsskrá en litli bróðir veiktist svo hún datt út en frænkan var ekki á þeim buxunum að hætta neitt við og athugaði málið reiknaði út að þetta væri fríhelgi og málinu reddað. Að vísu ætla ég samt að henda mér framaf í Silfrugjá. Hún er alveg sátt að fá eitt stk ökuferð út á land fyrir Kringlu-Smáraferð.Kellan ætlar meir að segja að skella sér með sko ekki oní gjána en með í ökuferð. Og dýra verslunarferð. Þar sem þetta stendur fyrir kemur hér ein auka létt spurning.Hvaða gaukur er þetta.??

kóngur  Góða helgi


ein myndagáta

af tilefni þess að ég er á stuttri vakt i dag og það er föstudagur eða flöskudagur fyrir suma,auk þess að stutt er í helgina Þessi er létt: Hver var þessi:

photo


Hvernig er það

á ekki að vera með handfrjálsann búnað ??

business_man


Vaknaður um

kl 0600 þrátt fyrir frídag. Kannski vegna þess að ég sofnaði snemma í gær samkvæmt mínum mælikvarða eða uppúr miðnætti eða þannig.Enda var ekkert varið á neinni sjónvarpsstöð sem hefði haldið mér vakandi lengur. Ekkert liggur fyrir annað en það að sá sem keypti af mér íbúðina ætlar loks að koma að skoða enda kominn til landsins.Og seljandinn að þeirri sem ég er að kaupa fer bráðlega út svo hann hafði samband til að athuga hvort ég væri til i  að flýta ferlinu. Annars er það í höndum fasteignasölunar að ákveða kaupsamningsundirritun.

Og dagspurningingin er að þessu sinni Hver var þessi gaukur:

Mr B


Þar sem

svarið kom strax þá varð ég barasta að koma með aðra í málaflokknum Hver er maðurinn og fyrir hvað er hann þekktastur fyrir

pic


Svona til að

vera skemmtilegur á þriðjudagskvöldi eftir að hafa eytt lunganu af deginum á námskeiði í vinnunni sem var 75 % upprifjun rest kjaftagangur eða með öðrum orðum engin lærdómur eða þannig. En hvað með það Það sem ég ætlaði að segja var að skemmtileg heitin er það að bauna einni góðri á þá og þær sem þurfa að mæta í vinnu í fyrramálið Er nefnilega sjálfur í fríi á morgun eða þannig...

Spurningin er : Hver er maðurinn og fyrir hvað er kauði þekktastur fyrir?

mynd


þriðjudagsspurning

er Hver er þessi maður:

rauða ský


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband