Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Hvað þýðir

brrrúmmm...skrens...brúmmm rumm...skrens ?

Ljóska á bíl við blikkandi rautt ljós.....Tounge


Er að hugsa um

að láta verða af því að panta einkaþotuna,risasnekkjunna og rollsinn. Og  ástæðan jú, það er búið að rigna yfir mig heilu lottovinningarnir frá Bretlandi Heildarupphæðin er komin uppí ca 4 millur í beinhörðum breskum sterlingpundum eða þannig sko....og ekki bara það. Nokia er líka gjafmilt. Þar bíða mín 500 þúsund evrur Eina sem ég þarf að gera er að láta vita að ég sé til í að taka við öllu þessu innan viku. Greinilega nýjasta nýtt í svokölluðu nigeriusvindlbréfum. Örugglega margir sem falla í þessa nýju gryfju.

Það er búið

að skipuleggja sumarfríið fyrir mig og ég fæ engu ráðið.Skipuleggjandinn ein úr frænkustóðinu lét í sér heyra með þær fréttir að hún væri búin að skipuleggja sumarleyfi þessa árs. Með öðrum orðum að eftir að ég væri búinn með köfunarleiðangurinn við strendur Ítaliu,þá var það næsta á dagsskrá að fara með henni til Parísar og í Disneyland í ca viku. Lofaði engu en hugmyndin er bara nokkuð góð. Hún var sem betur fer ekki búinn að panta miðann í þetta sinn.Á það til að framkvæma hlutina og spyrja svo.Dæmi um það var að eitt árið var ég að skoða bila í einu bilaumboðinu og hún fékk að fljóta með. Þar lét hún taka frá einn bil,dró svo móður sina seinna um daginn til að láta hana skoða og dagurinn endaði með því að þær mæðgunar óku heim á einum nýlegum.

Snögglegar breytingar

á bílaplaninu,fyrst undirlagt af snjó svo flestir spólandi og ýtandi,þá allt á floti og allir á svamli í rokinu sem gekk yfir og nú aftur snjór Og allt veðurguðunum að kenna. Annars fór dagurinn í ekki neitt. Hlóð batteriin eftir síðustu næturvakt fyrir núverandi yfirstandandi næturvakt,og ein eftir.

Ætlaði í rólegheit

eftir næturvaktina í morgun en allt fór á annan veg Í byrjun neitaði billinn að hreyfa sig.Ástæðan var að hann var fastur á kviðnum en ég mokaði undan honum svo það fór í lag. Þá hringdi ein frænkan til að minna mig á að ég ætlaði að redda ljósi fyrir hana svo ég ákvað að klára það mál.Önnur frænka hringdi fljótlega hafði frétt að ég hefði aðstoðað hina svo nú vildi hún sinn tíma svo þangað fór ég.Sú vildi bara spjall og tíma.Og aðstoð með heimaverkefnið sitt. Þá var það bankinn enn eina ferðina.Sækja kellu og versla inn var næsta mál á dagsskrá Og að endingu næturvakt í góða hvassa blauta veðrinu sem núna stendur yfir.

Lífið

er leikhúsmiði.Smile


Mættur á næturvakt

eftir góða matveislu.Allar frænkurnar mættu á svæðið og litli stubbur í sínum supermanklæðnaði.Ein frænkan kom því i gegn að ég myndi fara með henni í Kringluna,tók eiginlega fast loforð svo ég verð að standa við það.Lenti í því svo að aðstoða 2 nágranna en bílarnir voru fastir í stæðum enda snjóþungt mjög ef einhver hefur ekki tekið eftir því. Reddaði netbankanum í dag eða næstum því Þarf að fara aftur á morgun gleymdi einhverju leyninúmeri.Svo aftur á morgun í bankann.

Næturvakt senn

að ljúka og ég sé fram á að grafa bilinn upp sem yfir nóttina breyttist í stórann snjóskafl. Síðan er stefnt á heita sturtu,bankast nefnilega klúðraði netbankanum í gær svo ég verð að gera mér ferð í bankann til að láta opna aftur.Svo fékk ég skipun frá general kellu að sækja hana um kl 1500 í stað 1600. Ástæða svo hún geti klárað eldamennsku í sambandi við boð seinnipartinn hjá frænku hennar.Hennar fólk hefur þann sið að hafa svokallaðann minningardag. Semsagt einhver deyr og nákvæmlega einu ári seinna hittast ættingjar til að minnast þess látna.Pósturinn er farinn að skila sér á réttann stað þó ekki allur enn eru reikningar að skila sér inn. Sem er gott mál. Starfsmannafundur er í dag en ég get ekki verið á 2ur stöðum í einu (nema vera klónaður) svo ég verð að fórna honum.Enda kemur eins og venjulega ekkert út úr honum Reyndar endurtekið efni fund eftir fund um það sem þarf að gera eða breyta og niðurstaðan er alltaf sú að á endanum er ekkert gert. Þá er bara eitt eftir Að finna sköfuna.......

Þetta gæti

verið framtíðarsýn á Íslandi Smile

íslenskur fíll


5 daga

næturvakt framundan og ég verð að viðurkenna að mér hlakkar ekkert til.Hitti gamla kærustu eða þannig i bankanum.Eða kannski samasem kærustu.Vorum saman á gæsluvelli í den Ekki að vinna heldur vorum við í gæslu. Vorum harðákveðin í því þá að þegar við næðum aldri myndum við giftast. En það fór á annann veg, hún flutti út enda dóttir franska sendiherranns á þeim tíma.Núna er hún stödd hér á landi því eiginmaðurinn er í franska sendiráðinu.Algjör tilviljun að ramba á hvort annað í banka eftir allann þennan tíma. Engin gifting þó fyrirliggjandi enda bæði í fastri fangavist. Þetta er í annað sinn sem einhver úr forni forneskju skýtur upp kollinum...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband