Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Fortíðin

er liðin,framtíiðin óráðin en nútíðin er gjöf

Einum

bloggvini langar í hund  hehehe hér kemur stuðningsyfirlýsing á föstudegi í rigningu.....Nú er best að fara í felur því eiginkonan er á móti.....Hún gæti tekið upp á því að senda Silviu Ósk eða eitthvað annað sæskrimsli á mig fyrir að styðja eiginmanninn.....svefn

Föstudagur

í dag og ég er í vaktarfríi og stefni á helgarfrí.Var við kistulagningu í gær sem var öðruvísi en svona hefðbundin íslensk.Var svona sem varahjól túlkur milli prests og fjölskyldu...Kaffi og með því á eftir.Þar tók ég eftir að börn i viðkomandi fjölskyldu eru farin að kalla mig frænda og ég sem er ekkert skyldur þeim á neinn hátt allavega svo ég viti til.....þannig að ég á bara helling af svona aukafrændum og frænkum hehehe....

Náði í slatta af skelfisk í gær. Ein forréttindin við það að stunda köfun er að maður getur náð sér í sjávarfang frítt þegar maður vill....sparar kaup hahaha


Koss

dagsins eftir Valentínus....koss dagsins

Veit að þetta

er klikkun en ég er á næturvakt og það er ekkert að gera á næturvakt eins og vanalega,eitthvað verður maður að dunda sér við.....en var aðeins að leika mér eins og fyrri daginn sorry nætur. Og ætla að leyfa mér að segja vá með stórum staf eða þannig. 505 athugasemdir á hvað 14 dögum er slatti...og það að allar febrúarfærslur hingað til hafa fengið athugasemdir nema sú fyrsta....bara smá svona...enda næturvakt....má þetta búinn að spyrja.....Smile


Tók smá

Valentinusarköfun í dag eftir smá lúr eftir næturvaktina. Í Hvalfjörðinn var farið og eins og oft áður rákumst við á gamla félaga þið vitið hverja...Um leið og þeir urðu okkur varir fóru þeir á grynnra svæði....svona til að verjast haha en grynningar stoppa ekki kafara og eftir smá eltingaleik og fáeinar misheppnaðar tilraunir þvi varnaleikur þeirra var góður í þetta sinn örugglega æft sig, tókst að koma höggi á þá reyndar fengum við högg líka meira að segja nokkur...Leikar enduðu náttúrulega með sigri kafara og einum blautum ræðara......

Þá er

þessum Valentinusardegi senn að ljúka og ég mættur á næturvakt og á fyrir 4 daga frí...vonandi hafa allir/allar /öll átt góðan dag,hámað i sig konfekti og andað að sér blómailmi.....og verið góð hvert við annað...eða eins og einhver sagði Dýrin i skóginum eiga að vera vinir líka rándýrin hehe ætla að vona að tilvonandi krókódilar sem til stendur að hitta seinna á árinu muna eftir því.........

Svona af

tilefni dagsins þá ætla ég barasta að segja Gleðilegan Valentinudag eða þannig......Valentina

Stór síður

frakki er búinn að vera á eftir mér í allann dag....reyndar náungi af frönsku bergi brotin..Frá Ríkissjónvarpi þeirra Fransmanna. Gómaði mig á barnum á Hótel Sögu. Reyndar ég hann..Tíu bls samning um rétt á hinu og þessu í sambandi við desemberferðina. Græddi þó aðeins á þessu verð á launum bæði hjá Frökkum og hjá leiðangrinum..Fékk í hendurnar nýjustu tækni tæki sem virkar sem laptoptölva sími sjónvarp og gps svo ég get verið í sambandi við t.d bloggheima inn í miðjum regnskógi á meðan krókódill er að japla á mér Get haft það i beinni....hehehe...besta er ég fæ að halda því.....

Stöðumælar...

Hvaða manni datt í hug þá hugmynd að fara setja stöðumæla við spítala. Þetta er staður sem fólk kemur á til að heimsækja veika ættingja,fylgja öðrum í aðgerðir og so on svo maður aðeins enskuslettir....En það gróflega finnst mér sem ég varð vitni um daginn...Málið var þannig að einn af nýbúum landsins veiktist um áramótin síðustu snögglega og í ljós kom að það var krabbi í lungum enda reykingamaður. Og í byrjun febrúar kallaði spitalinn nánustu skyldmenni saman til hans þar sem hann myndi ekki lifa af nóttina.Einn af skyldmennunum hóaði i mig til þess að vera túlkur ef með þyrfti Þessu gat ég ekki neitað þó mig langaði reyndar ekki til þess að blanda mér í málið. Mætti á svæðið og dvaldi með fólkinu yfir nóttina. Um morguninn var sektarmiðar á öllum bílum....Það er svona sem gerir mann vondan útí borgaryfirvöld Fólk sem kemur í flýti til að kveðja ættingja sinn hugsa ekki um einhverja mæla til að borga í...það fer bara inn enda kannski í kapphlaupi við tímann Og mælar á spítalalóð ? Hvar þekkist það annarstaðar en á Íslandi....að sekta fólk á dánarbeði....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband