Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Búinn

að sitja starfmannafund i allann dag skyldumæting þó ég væri i frii Datt reyndar fljótlega út og var litið að hlusta á ræðumenn. Síðan var farið i 50 ára afmæli þar sem við tók karókí dauðans.Sumir eða öllufremur sumar tóku uppá því að söngla karókí og það var algjör hryllingur Breima köttur tekur þetta betra. Var einnig að vinna i að redda búnaði fyrir köfun á morgun og allt er komið nema það allra nauðsynlegasta loft.....en það reddast.....hafðisamband við gamla köfunarkennarann minn sem ætlar að redda málinu ....

var að taka eftir því að við hverja einustu færslu sem ég hef fært hingað til inn í desember hefur verið kómenntað við....á ekki orð annað en vá....og reyndar annað orð líka TAKKSmile

Sýnir að það eru þá einhverjir sem lesa vefrausið mitt hehehehe.........


Var að

skríða á land eftir næturrölt á hafsbotni...Buddyinn gleymdi fitunum sínum svo ég lánaði mín Það þýddi að ég varð að nota gamla lagið hreinlega að labba eftir botninum eða valhoppa svipað og geimfarar gerðu á tunglinu forðum...Annað sinn sem ég geri þetta og í þetta sinn var engin óvænt brekka á leið minni eins og forðum Dáldið óvenjuleg en samt skemmtileg köfun.....

þá er

að vefrausa smá eða blogga...sú litla hress eftir ævintýri gærdagsins fór i Kringluna i dag og skemmti sér vel..Nú er allt í sambandi við jól klárt,bara bíða og næsta verkefni er að finna galla og fylgihluti fyrir væntanlega baðferð um helgina í Silfru....sem verður örugglega skemmtileg....

Fór

beinustu leið af næturvakt á Landspitalann. Sú yngri af þeim tékknesku nældi sér í 1 stk nýrnasteina eða svo í morgun svo áætlun dagsins fór pínu úr skorðum. Skrapp aðeins frá til að skipta um föt raka mig og fara í klippingu Síðan aftur á lansann... Ekki búið að ákveða hvað gera skal enn en damanstendur sig vel. Ætla í dag að finna belti og kút fyrir Kela svo hann komist í bað um helgina hehehee (smá skot)...enda stutt til jóla og allir i jólaskapi.....

Greinilegt

að það þarf eitthvað að gera í málum ungra ökumanna....kannski bilatölvuleikir hafi hér einhver áhrif ?
mbl.is Fimm ungir ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér

jibbíiii
kemur svo mynd spés fyrir Kela.....Smile

Er á

síðustu vaktinni á þessu ári.Komin í jólavetrafrí eftir ca 6 klst.Við tekur stórt ?.Annars er morgundagurinn fullskipaður,lofaði að fara í klippingu lít út eins og Nealdalsmaður þessa stundina órakaður og óklipptur en með góðar tennur...spyrjið bara tannlæknirinn hann meina hún hefur reynslu..og Kringluferð með dömurnar þær elska stórmarkaðsferðir...fíla íslensk jól..

Svo er það að msnið var tekið út af vinnutölvunni Nýjar reglur bannað að msnast i vinnunni Annars var það bara næturvaktirnar sem notuðu þetta mest Dagvaktir höfðu engan tíma í slíkt.. Þetta stytti næturvaktirnar Hvað verður næst ?


Fór með

þriðja SAS gaurnum í köfun eftir að ég nartaði i tannsa...Reyndar fór ég með 2ur. Lofaði að gera það sem þeir sögðu og það kom að því að það var ég sem varð nerfus. Farið var í sjóköfun og niðrá 35 m. Þar var smá kennsla tekin i þeirra fræðum. Sem fólst í því að taka búnað af þar að segja loftkút og vesti fékk að halda beltinu, og síðan að fara uppá yfirborð án lofts af þessu dýpi Reyndar eru kafbátaliðar þjálfaðir i þessu ef þeir þurfa að yfirgefa kafbát. Viðurkenni það að ég var ekki alveg í rónni fyrr en upp var komið. En gaman að prófa og ég náði prófinu ef hægt er að kalla þetta próf Semsagt þeir náðu smáhefndum.

Tími á

smá vefraus. Var að koma enn eina ferðina frá tönnsu. Nema hvað púkagenið fór í gang,kannski vegna þess að ég fór nánast beint af næturvakt í stólinn. Hákarlagenið fór einnig í samband og að hætti hvítháfa skellti ég saman skoltinum og beit nett. Komst að því að gúmmihanskar eru ekkert sérlega góðir á bragðið. Viðbrögðin voru hjá tönnsu að henni brá fyrst,horfði svo lengi á mig sagði ekki orð en síðan braust fram svona smitandi músatístshlátur. Semsagt allt i góðu og næsti timi eftir áramót.....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband