Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Pakkahryðjuverk

á Þorláksmessudegi. Ekki var ég að verki i þetta sinnið. Heldur tóku sig til tvær af litlu frænkunum.Önnur fór í heimsókn til annarrar.Þar tóku þær sig til og opnuðu alla jólapakkanna sem önnur þeirrar átti.Þegar ég leit við í stutt innlit var grátur og grístan og jólapappir útum allt. Sem betur fer voru ekki allir pakkar komnir sem hún átti að fá svo þessu vandamáli var pínulitið bjargað fyrir horn. Svo reyndar var stutt í brosið aftur.

Á Þorláksmessu

er þetta einn nauðsynlegasti hlutur fyrir þá saklausu ríkisborgara Íslands og líka hina erlendu,sem ekki geta á neinn hátt fengið sig til að setjast til borðs og háma í sig hinn illa lyktandi eiturefnaúrgang sem nefnist á ylhýra móðurmálinu  kæst skata. Ég játa það að ég hef aldrei á minni lífstíð komið að þeim tímapunkti að fara að eta eitur þetta og hefur mitt lyktnæma nef komið í veg fyrir það en fyrir þá  sem  háma í sig segi ég bara Verði ykkur að góðu...

gasgríma


Eitt..

kyn,eitt land,ein þjóð. Hljómar eins og gamalt þekkt slagorð frá 1940. Nýjasta slagorð öfgahóps sem nefna sig feminista.Byrjuðu vel og stefndu á að gera góða hluti og hafa gert.Engin getur neitað því. En nú er fámennur (vonandi) hópur öfgakvenna (aðalega) búinn að taka uppá því að snúa öllu uppí algjört rugl. Í stað þess að berjast fyrir frekari jafnrétti,launamun og öðru sem kæmi til góða þá snýst baráttan nú um að kæra hin og þessi fyrirtæki banna söngtexta sem innihalda eitthvað kynferðislegt. Mig furðar reyndar á einu,það er ekki búið að setja neitt útá lagtexta í einu af okkar besta jólalagi Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Þar er sungið um barn sem verður vitni að.........Að bendla sig svo við þær stallsystur sínar sem börðust fyrir jafnræði á fyrri tímum er til skammar.

                          Die dulci fruere.


Jólakveðja

jólasveinn á ferð jólakveðja 

Óska öllum bloggvinum nær og fjær og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsælts komandi árs með þökk fyrir öll bloggsamskiptin og athugasemdir á því ári sem senn er að ljúka.

 


Notaði tækifærið

undir bátog fór í síðustu neðansjávarferð fyrir jól á heimaplánetuna mína.Kominn í bann framyfir jól.Yfirvaldið á heimilinu setti mig í bann. Hlýði annars hausinn af. Hittum fáeina ufsa og karfa ásamt einum steinbít Fáeinir trjónuskabbar voru að háma i sig veislumat,jólamatinn í ár hræi af dauðum sel.Eftir köfun í ca 2 tíma beið okkar heitt kakó súkkulaði og heimabakaðar smákökur..

Aðeins 4

dagar til jóla eða á kannski að segja frekar 3,5 dagar. Líður hratt. Og gjöfum og kortum hrannar inn. Búinn að frá afsláttarkort frá BYKO,eða viðskiptamannakort eins og það heitir víst ásamt innflutningsgjöf þó svo ég sé ekki fluttur ennþá.Þá er samskonar kort komið frá Húsasmiðjunni með innflutningsgjöf.Líka N1 hefur sent inn kort. Hvað er að ske. Meira að segja hefur komið gjöf frá fyrirtækinu sem aldrei hefur gert slíkt áður.Ætli veðrið hafi einhver áhrif ?

ein flott

númer eitt

Það

er komin nótt.Flestir sofa.Hálfur heimurinn sefur,hvarvetna eru þessi lokuð augu,liggjandi búkar sem bylta sér í hálfgerðu meðvitundarleysi af og til. Og svo þessi áberandi andadráttur,þessi ruddalegi andardráttur. Þegar mest er HROTIÐ.....

(er nefnilega á næturvakt)Smile


Blá mynd úr

henni Silfru Vona að feministar misskilji þessa ekki......blá mynd


Verð barasta

að segja það að, það er dálitið undarlegt að vera að hlusta á jólalög sem er um snjó og kulda,en á meðan veður maður elginn í rigningu og hlýjindum ásamt miklum skammti af golu. Þetta verða rauð jól í ár.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband