Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Komin á

fætur á hádegi eftir ca 4tíma svefn  gat ekki  sofið meir
þrátt fyrir að vera búinn á næturvakt  Reyndar lét síminn í sér
heyra rétt áðan og var það vinnufélagi að  kalla á aukavakt en ég
ákvað að afþakka ekki það að  ég vildi ekki var bara búinn að
ráðstafa deginum í annað  löngu fyrirfram 

ekkert

að gerast á vaktinni svo ég dundaði mér við að setja inn fáeinar myndir .....

35%

vá 35% hækkun á eldsneyti Skyldu íslensku félögin vita af þessu....
mbl.is Eldsneytishækkunum harðlega mótmælt í Nepal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

saga af lífinu.

Natalia..

Dag einn var ný stelpa kominn i bekkinn,dökkbrún augu svart hár rauð peysa og nýjar gallabuxur. Hún hét Natalia og var nýflutt.

Strákunum leist vel á hana en stelpurnar voru ekki eins vissar. Bekknum var skipt i nokkurskonar gengi,hópar af allskonar krökkum. Natalia sá vel að það var einn hópur af stelpum sem voru vinsælli en hinar Sátu þarna i flottustu fötunum og svo var þarna hópur af strákum sem voru rosalegir töffarar Hún settist ein þarna og vinsælu stelpurnar komu yfir til hennar. Henni fannst strax að hún passaði ekki inn í hópinn en samt vingaðist hún við þessar stelpur.Ein var ljóshærð og bláeygð og vinsælust af þeim öllum Hún hét Arna Natalia fann fyrir þvi að hún væri á móti sér Hinar voru undirtyllur Örnu, Sara ljóshærð virtist ekki vera gáfuð Linda rauðhærð  algjör tík og svo var það María dökkhærð sem sagði fátt en hún var sú eina sem henni leist vel á. Annars var þetta alveg eins og i öllum hinum skólunum ein klíka sem öllu réði. Hún var alltaf að flytja vegna vinnu pabba sins. Hún vissi að þær vinguðust aðeins við hana útaf réttu fötunum og réttu útlitinu annað ekki.

Strákarnir komust fljótlega að því að það var ekki auðvelt að komast að hjarta hennar Sumir kölluðu hana kalda og hjartalausa. En henni var alveg sama. Þeir myndu bara á endanum særa hana

Henni leið alltaf verr og verr engin vissi að hún væri þunglynd Hverjum myndi detta það i hug Stelpa sem átti ríka foreldra og fékk all sem hún vildi. En Natalia þjáðist af þunglyndi kannski vegna allra flutninganna og nýs umhverfis hún vissi það ekki.

Dag einn i skólanum dagur sem virtist ætla að vera jafn aumkunarverður og aðrir dagar sá hún nýjan strák í hinum bekknum sem henni fannst mjög myndarlegur Hún fór að tala við hann Hann hét Páll Þau áttu margt sameiginlegt bæði áttu foreldra sem alltaf voru að flytja og engin systkyni. Þau voru búin að talast við smátíma þegar stelpurnar komu Þær voru alveg yfir sig hneyslaðar og spurðu hvað eiginlega hún væri að hugsa Hann væri nörd sem skipti engu máli og hún ætti ekki að umgangast svona lið ef hún ætlaði að vera með þeim..Natalia strunsaði burt og fannst þær fárárlegar. Hún var reið en svo breyttist reiðin í sjálfásakanir. Hún gat ekki einbeitt sér i að neinu i kennslutímanum

Í frímínútum ákvað Páll að tala við Nataliu þrátt fyrir það sem hinar stelpurnar höfðu sagt Hann vissi i hvaða stofu hún var og fór þangað 'A leiðinni sá hann hana fara inná bað og hann ákvað að bíða eftir henni. Hann beið og beið og ekki kom hún fram. Krakkarnir voru farnir að týnast inn i tíma en hún kom ekki fram. Hann fór að hafa áhyggjur og ákvað því að banka.

Hún sat þarna inni á baði og hugsaði hve aumkunarverður staður þetta væri en það skipti ekki máli. Hú tók upp hníf og ákvað að skera sig svo einfalt var það Hún fann ekki fyrir sársauka hann var meiri i huga hennar Hún þoldi ekki að það var engin sem elskaði hana og skildi.Loksins varð allt svart og það leið yfir hana Hnífurinn var greinilega sokkinn nógu djúpt.

Þegar Páll bankaði á dyrnar heyrði hann aðeins lágt uml. Hann grunaði hvað hafði skeð Hann hafði séð sorgina í augum hennar Hann kallaði á kennara sem opnaði hurðina Aðkoman var ekki góð er þeir þustu inn Natalia lá á grúfu með hníf i hendinni og blóðið lak niður hálsinn Páll táraðist er hann lyfti henni af gólfinu og stoppaði blóðrennslið. Allir i skólanum fengu áfall þegar þeir sáu sjúkrabilinn koma og það kom jafnvel öllum á óvart að það skyldi vera Natalia sem færi með honum. Hún var þegar sett á gjörgæslu og læknar reynda allt sem þeir gátu en allt kom fyrir ekki Það var of seint.

Natalia Isafold Flórens dó 25 september 14 ára gömul. Jarðaförin var fjölmenn Allur skólinn mætti.

Þannig endaði líf Nataliu en gat þó ekki endað ástina sem Páll bar til hennar.Hann endaði líf sitt i þeirri trú um að hann myndi komast á sama stað og stúlkan sem vann hjarta hans á nokkrum minútum........


aftur og nýbúinn

En og aftur missti ég af menningarnótt var að vinna á næturvakt þá síðustu og aftur núna Semsagt alltaf jafn óheppinn en eins og einhver orðaði það :maður gerir þá bara ekkert af sér á meðan ....

neðansjávar......

hryllingsatriði var það sem ég fékk í dag. Á meðan aðrir tóku til við að skokka marathon fór ég í köfun eftir rólega næturvakt.

Allt gekk að óskum nema í enda ferðarinnar um djúpin blá en þá rákumst við á hræ sem hópur trjónukrabba voru að gæða sér á. Af einhverri rælni stakk ég hendinni inní miðjan hópinn líklega til að tékka á hvað væri á matseðlinum en ekki tók betra við en það að ég nánast límdist við déskotas hræið. Og krabbar af öllum stærðum með gripklær af öllum stærðum tóku upp á því að byrja að skríða upp handlegginn og reyndar um mig allann og gerðu sig líklega að hafa mig sem næstu máltíð

en félaginn eftir af hafa næstum drekkt sér í hláturskasti bjargaði mér frá því að verða etinn lifandi en ekki fyrr en hann hafði tekið mynd af fyrirbærinu mér með nýju vinunum (verður sett hér inn fljótlega)

Svona er kafaralífið í dag.......fjör í öllum ferðum......


stutt

og laggott eða eins og einn rómverji sagði forðum daga á röltinu : Igitur qui desiserat pacem pracparet bellum......Brosandi

Út....

Útrýmum áfengi...drekkum það alltGráðugur

Framtíðarstarfið

Var i barnaafmæli þar sem afmælisbarnið 5 ára var spurt hinnan sígildu spurningar af ömmu sinni Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin stór Sá stutti var með þetta allt á hreinu sko hann ætlaði sko að verða hryðjuverkamaður og sprengja helling af flugvélum Þetta sjokkeraði alla nærstadda og sérstaklega ömmunna sem vissi ekki hvernig bregðast átti við þessu svari....

Ég bara spyr er þetta framtíðin ? að nú er ekki lengur spennandi að verða hjúkka slökkviliðsmaður eða lögga heldur eftirlýstur hryðjuverkamaður.....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband