Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

þoli

ekki þegar svona kemur fyrir..þegar maður rekst á einhvern/einhverja sem þekkir þig með nafni en það er alveg ómögulegt fyrir mann sjálfan að muna hvað viðkomandi heitir eða hvaðan maður þekkir viðkomandi Svo fer allur dagurinn i að reyna sitt ýtrasta að rifja upp stað stund hvar og hvenær og grafa upp nafn og kennitölu.....kannski ekki kennitölu....en

Vaktinni um

það bil að ljúka þeirri fyrstu af 4um.Kominn nýr dagur og aðeins rúmlega 100 dagar til jóla. Best að opna alla glugga til að hleypa fáeinum geitungum inn svona í morgunsárið Dagvaktin verður alveg klárlega ánægð með það........allt eitrið búið svo....spurningin er :

á ég....á ég ekki.....


Öryggisþjónustan

Var þetta öryggisþjónusta ríkisins eða einkaleyniþjónusta sjálfstæðisflokksins???

þetta

kallar maður að fá fiðring í magann....Hlæjandi
mbl.is Skurðaðgerð gerð við aðstæður líkar þyngdarleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

næturvakt

enn og aftur sem byrjaði með hernaði Mætti á næturvakt þar var allt á rúi og stúi, 2 starfsmenn í hörkuhræðslukasti útaf 3ur stóreflis geitungum sem voru búnir að hertaka staðinn ásamt einni margfættlu af óþekktri tegund og 2ur köngólóm svo enn og aftur þurfti ég að taka málin i mínar hendur og hefja eiturefnahernað.Að vísu fór önnur köngulóin og vinkona hennar margfættlan sjálfviljugar út hin var myrt sömu leið fóru bræður hennar geitungarnir en þó ekki fyrr en eftir smá eltingarleik...Ekki var vígaferlum lokið enn því við vaktarskipti þegar ein daman var að fara í bíl sinn breyttist hún í viðvörunarflautu sem almannavarnir væru stolt að fá því einn feitur gulur og svartur hafði yfirtekið bilinn en hann fór fljótlega yfir geitungamóðuna miklu eins og hinir Svo 4 geitungar +1 köngóló í byrjun næturvaktar og enn er nóttin ung....

Játa

það að dagurinn i dag hefur farið i ekki neitt annað en afslöppun sjónvarpsgláp og tölvu..fyrir utan  það að ég skipti um framljósaperu á bilnum enn eina ferðina...

gatnakerfið

útúr borginni er löngu sprungið Það sýnir t.d.tvö síðustu óhöpp í Ártúnsbrekkunni Kominn tími á að gera eitthvað í því...Segjum svo að eitthvað kemur uppá svo borgarbúar þurfa að rýma borgina í flýti.Það þarf ekki nema einn bíl til að stoppa allt og allir sitja fastir.....

 


Fékk

fuglar_heidagaes.jpg
eitt stykki gæs beint i fangið í dag....og það neðansjávar ég á leið upp hún einhverra hluta á leið niður..að gera hvað veit ég eigi...spurði ekki

best að

c_documents_and_settings_smfr_borgarholtsbrau_my_documents_oceanic.jpg
grobbast aðeins.... Þetta er ein ef ekki sú allra besta mynd sem ég hef tekið á mínum köfunarferli....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband