Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Nú eru

sumir væntanlegir ferðalangar að fá glaðning i pósti þar sem tilkynnt er um hækkun á ferðunum þeirra hjá ferðaskrifstofunum. Sjálfur hef ég sloppið við svoleiðis þar sem ég kláraði málið strax. En ef gengið hefði farið í hina áttina, hefðu þá ferðaskrifstofurnar sent bréf ? Um lækkun ferðar ? Ekki held ég það. Það er alltaf sama sagan hjá fyrirtækjum hér á landi Fljótt að taka við sér með að rukka inn hækkanir en ef lækkun er í gangi þá er ekkert gert og farið hljótt.

Var að sækja einn ferðalanginn í gærkvöldi sem búinn er að vera 3 mánuði erlendis í hitabeltinu Hann sagðist hafa verið á báðum áttum í því að koma Úr mjög ódýru verðlagi í dýrtíðina hér. En lét þó vaða.Sagði þó að gott væri að koma í hreina loftið hér.

Og djölullega gengur illa að fá viðgerðamann. Búinn að rekast á það síðustu 3 daga. Það nefnilega losnaði gluggi frá festingum sínum hjá mér fyrir þremur dögum og aðeins 2 litlar skrúfur halda honum á sínum stað. Á 3 hæð og fjölfarinn göngustígur fyrir neðan enda stutt í leikvöll sem er vinsæll. Hef hringt í 3 aðila sem sögðu allir að ætluðu að koma strax enda bara um tímaspurnsmál hvenær þessar 2 skrúfur gefa sig en ekkert hefur bólað á neinum þeirra enn og erfitt er að ná sambandi við þá Annaðhvort á tali eða ekki svarað. 


Skrapp í

sund ég meina köfun í gærkvöldi í blíðskaparveðri og sléttum sjó Eftir ca klukkustundar neðansjávarveru komum við upp á yfirborðið ennþá í sléttum sjó en í svartaþoku.Sem betur fer voru kompásar með i för annars værum við líklega á svamli áleiðis til Grænlands á slóðir ísbjarna og sela.Smile

Tók

uppá þeim óskunda að dauðlanga allt í einu til þess að japla á tyggjói,auðvitað þegar ég hafði ekkert slíkt við hendina.Þetta ágerðist er leið á daginn.Svo hafði ég tíma til að skreppa i sjoppu og verslaði eitt stykki tyggjó,en um leið og ég var kominn með jórturfæðið hvarf bara öll löngun til þess að japla og nú er fullur pakki útí bíl sem biður þess að vera opnaður og  sem að öllum líkindum verður löng bið.

Tími

á smá blogg,þrátt fyrir algjöra tíðindalausa gúrkutíð hér á bæ. Frakkland virðist vera mjög vinsælt í dag hjá ættinni. Ein frænka konunar er nýkomin þaðan Við erum að fara þangað og aðrar  tvær sem skyldar eru kellu eru á leið þangað í sumar. Og litlu frænkurnar vilja ólmar komast þangað Ein er reyndar á leið þangað en hinar tvær áttu að fá að fara en á síðustu stundu var þeim svo bannað. Pabbinn ætlaði að gefa eldri dótturinni ferð til Paris í afmælisgjöf en rétt fyrir brottför bannaði múttan dóttirinni að fara (Þau eru nefnilega skilin) og þá í leiðinni systur hennar líka svo það er bara ein sem fer með okkur.

Engin köfun hefur verið farin aðallega vegna slatta af næturvöktum undanfarið en ætla að bæta það upp í næstu viku enda búinn að vera aðeins of lengi á þurru Er að þorna upp.

Það má segja að letin hafi tekið völdin þessa vikuna Má það alveg amma sagði það..


Kom mér ekkert

á óvart í þessari þáttarröð um bestu stríðstól sem fá einkunn 1-10 sem ég hef verið að glápa á,að besti kafbáturinn sem hefur verið notaður í hernaði reyndist vera sá þýrski U-boat sem skákaði nútíma kjarnorkukafbáti þrátt fyrir nýjustu drápstækni. Eins og áður var sagt Það gamla blífur.Sjáið bara gömlu rakhnífanna. eru að koma aftur.

Enn er ekki búið að finna út hvar blessað hótelið er í Paris en tvö koma nú til greina sem eru á sitthvoru götuhorninu í sama hverfinu. Gróf upp litið fyrirtæki á veraldarvefnum sem sérhæfir sig í að kynna ferðamönnum sem áhuga hafa fyrir Frökkum. Semsagt þú hittir franska fjölskyldu á þeirra heimaslóðum og færð að kynnast lifnaðarháttum með kvöldverði heima hjá þeim Lét slag standa og við munum hitta hjón sem hafa litið fyrirtæki sem býr til súkkulaði,ekta franskt.


Hrekkur

Um daginn var ég í smá partíi þar sem frændi konunar og hans kærasta voru að halda uppá fæðingu sonar þeirrar. Þetta var svona bland í poka íslenskt-pólsk-filippinskt partí. Þar sofnaði einn af pólverjunum ölvunarsvefni sem gaf mér og öðrum tækifæri. Fundum allar klósettrúllur sem við fundum og vöfðum gæjann uppí múmiuklæðaburð,drösluðum honum þannig út á næstu SVR-stöppistöð sem var handan götunar. Og síðan var hann harkalega vakinn upp í þann mund sem strætóinn rann uppað.Hann rauk upp,fattaði ekkert,sá strætó og inn i hann fór og hvarf sýnum Stuttu seinna mátti þó sjá gangandi slagandi fulla pólska múmiu koma til baka ekki alveg hressa í skapi.

Var í

afmæli áður en ég skellti mér á næturvaktina. Mikið fjör mikið gaman og of mikið etið. Ein að verða 17 ára og billinn og prófið á næstu grösum. Áður var ég búinn að spasla saman grilli sem var bara auðvelt Fór bara ekkert eftir teikningum þá gekk þetta allt saman upp. Náði líka að hrekkja eina frænkuna eða öllu fremur það var stefnt að því að stríða henni en er til kom slapp hún en önnur varð fyrir því þar sem hún (frænkan) komst að því í tíma. Hún fannst hugmyndin góð og fórnaði slatta af súkkulaði sem er hennar yndi í verkið. Sem var að smyrja bráðnu súkkulaði á hurðarhún. Fórnarlambið tók síðan í húnin sem var sleipur og klistraður og fékk allt klístrið á sig sem tók LANGAN tíma að hreinsa og erum við frænkan nú efst á skotmarkalista viðkomandi.

Hvassahraunið

heimsótt fyrir vakt.Skellti mér útí hlýtt  Norður-Atlanshafið í sumarblíðunni. Allavega var það hlýtt í dag,og skyggnið var eftir því bjart og gott. Æltuðum að dóla þetta á 12-15 metrunum en það fór aðeins útfyrir planið og við vorum komnir niðrá 20-20 metranna eftir örstutta stund Fundum netanál búna til úr hvaltönn geinilega sem einhver sjóarinn fyrr á tímum hefur örugglega misst.Greinilegt að hafið geymir margt það er bara að finna það og koma því upp. Fyrir svona gramsköfun eins og ég kalla það þá er Djúpuvik kjörstaður. Bara í höfninni er hægt að finna allskonar hluti frá síldarárunum stríðsárunum og jafnvel frá eldri tímum.

Annars, er mættur á dag-kvöldvakt til 22:00.Og stutt í næturvaktirnar sem bíða í lok vikunar.


Fyrst

var þetta bjössi í sólbaði,þá hestur nú kind. Var þetta bara ekki bónuspoki ?

Komin aftur

eftir stutta bloggpásu.Ástæðan var ekki leti heldur fór ég í stutt og laggott. Stutta bústaðarferð með frænkustóðið. Og köfun í leiðinni. Tókum Breiðafjörðinn með ás og trompi. Upphitun fyrir næstu bústaðarferð í ágúst. Annað skipti sem ég kafa í Breiðafirði Staður sem mætti fara oftar á  í sambandi við köfun. Annars skeði litið fyrir utan þetta hefðbundna pottur grill spil og leikir afslöppun. Hafði nefnilega frí í vinnunni yfir helgina. Ein frænkan prófaði hest i fyrsta skiptið og fannst mjög gaman eftir að hafa loks fengist til að fara á bak en smá diplómat þurfti til að koma henni á stað Svo snerist það við eftir hestaferðina. Annars allt gott að frétta.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband