Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Enn hækkar

drykkur bilsins.Við ættum að fara framá í samningum að fá samsvarandi hækkun launa í hvert sinn sem bensinið hækkar svona til að hafa eitthvað í buddunni á móti.
mbl.is Bensínið hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gærdagurinn..

Fór í Hvassahraunið,stað sem ekki er oft farið á,aðallega vegna þess hve mikið þarf að hafa fyrir því að komast á staðinn,þó stutt sé í hann. Slæmur vegur,labb með græjur og 150-200 metra sund til að komast á almennilegt dýpi.En alveg þess virði þegar útí er komið. Mikið um gróður,stór þangskógur og mikið botnlíf eins og td krabbar kuðungar krossfiskar og igulker.Einnig er mikið af fiski þarna og er karfinn áberandi. Þurfti svo að mæta í hreinsunardag i vinnunni á frídegi auðvitað.

í þangi uppleið  


Komst að

því í gær að kvenfólk hefur alveg einstæðann eiginleika umfram okkur karlpeninginn.Sem er að tala endalaust. Sótti kellu úr vinnu i gær og frænku hennar sem vinnur á sama stað.Og sú getur talað.Frá því við ókum frá vinnustaðnum að Kringlunni, í Kringlunni og á heimleið og heima held ég að hún hafi náð að þagna í ca 10 mínútur af kannski þriggja tíma leiðangri. Og auk þess hefur hún þessa skerandi páfagauksrödd sem bergmálar með 100 desibelum í öll eyru í næsta nágrenninnu. Þessi hálfur frídagur eftir næturvakt fór annars i ekki neitt fyrir utan þessa hátóna Kringluferð.

Svo stendur til að skreppa yfir til Vestmannaeyja kannski i vikunni og jafnvel kannski ekki fyrr en seinna í sumar.Til að kafa að sjálfsögðu.Við köfuðum 2 fyrir fáeinum árum við Faxasker til að athuga um flak sem liggur þar. Sonur og bróðir skipstjórans sem var á bátnum bað um að athuga hvort eitthvað lægi við skerið svo við fórum 2 niður báðum megin skers og tókum myndir.Austanmegin fundum við leifar gamallar skútu með dönsku nafni ílla farin og auk þess undinn botn af tréskipi líklega af því sem við vorum að leita af. Dýpi cirka 10-12 metrar.Vestanmegin vorum við  komnir á meira dýpi og klikkaðan straum sem gerði allt erfiðra Þar fundum við mikið af braki en ekkert sem gat staðfest það að við værum í réttu flaki þó allt benti þó til þess. Nú vilja semsagt sömu aðilar að aftur sé farið í brakið vestanmegin til að staðfesta að það sé Helgi ve 333 og ef hægt er að koma upp með sönnun. 


Hver

Silfravill koma í hellinn minn?

Ætlaði að

vera extra duglegur eftir næturvakt er ég kom heim i morgun Það var nefnilega sameiginlegur tiltektardagur i blokkinni en er til kom gerði ég ekki handtak,sofnaði rétt áður en allt byrjaði.Svaf þó bara í ca 2 tíma Þá kom einn frændinn i pössun og stuttu seinna systir hans svo dagurinn fór i að vera með þeim. Enduðum á hamborgara áti. Skellti mér svo á næturvakt.

 


Gripnir

í háleynilegu verkefni bandarikjastjórnar :

leyniverkefni


Bara ánægður með

kaupin á vidéóvélinni sem ég keypti handa konunni i afmælisgjöf.Vað pínu að þreifa mig áfram,það að segja á vélinni og er bara sáttur við hana. Kellan var eitthvað að skjóta á mig með það að ég hefði i raun keypt hana handa mér en í hennar nafni Hún er of tæknileg fyrir hana sem vill bara einfalt og fjótlegt í sambandi við tækjabúnað. Eða þannig...

Veðrið lék við landsmenn í dag en ég var að vinna svo ekki gat ég notið útiverunar en eins og einhver sagði það kemur bara dagur eftir þennan dag með sól og blíðu og þá verð ég í fríi. Þrjár næturvaktir bíða handan hornsins og játa að mér hlakka ekki til


Gleðilegan 1 maí

til allra. Ekta dagur fyrir frí en Frown ekki hjá mér,þarf að vinna eins og vanter.Frænkustóðið ásamt kellu ekkert ánægt með þessa vaktarvinnusemi og eru farin að heimta fjölskylduvæna atvinnu. Annars ekkert að ske. Hefði farið i köfun en ....vinnan.

« Fyrri síða

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband