Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

29072007

Áframhald var á snyrtingu hjá kellu í dag Sagði að það tæki barasta mesta lagi 30 mínútur.Þessar 30 mínútur urðu reyndar 2 og hálfur tími og það var bara helmingurinn sem var tekin Rest bíður morguns. Loks þegar biðin var á enda var brunað í Ölfusborgir en þar var allt liðið að halda uppá afmæli. Þar beið líka frænkustóðið en ég slapp að vísu ágætlega frá þeim í þetta sinnið því þær voru í heita pottinum Eftir mat og tertur var spilaður fótbolti með frjálsri aðferð sambland af fótbolta og ameriskum.Ég var í marki svo ég hafði það nokkuð rólegt enda markið vel varið Frænkurnar sáu um mestu vörnina eða þannig. Nóg er af kaninum á svæðinu og voru þær útum allt. Sumir af krakkastóðinu reyndu að ná í en það var vonlaust dæmi. Eftir hlaup fram og aftur eftir bolta og rólegheit í markinu var haldið heimleiðis. Og beinustu kompásstefnu heim til að skila kellu og síðan ekið á löglegum hraða í vinnuna á næturvakt Svo bíður 4 daga frí Samt sem áður verður þó líklega nóg að gera þessa daganna Vinn svo einn dag og síðan 5 vikur frí...jibbijæja....

Sé svo fram á að þurfa að liggja fyrir akkerum í biðstöðu 2-3 langar klukkustundir á morgun meðan kellan er í snyrtingu. Annars verður eða er dagurinn vel bókaður þannig að kannski þarf ég ekki að bíða á staðnum Ljósmynndari kemur á morgun í sambandi við kofann meina íbúðina eða mig minnir það allavega Gæti þó verið á þriðjudag Og íbúð verður skoðuð á morgun Verð líklega að færa til sjúkraþjálfarann um 1-2 daga.

Annars með öðrum orðum : megið þið öll hafa góða vinnuviku framundan hehehe en ég verð i fríi......


Skrapp í

Garðinn i dag á meðan frúin lét snyrta á sér klærnar. Demdi mér fram af bryggjunni og eyddi smá tíma með fiskum og öðrum sjávarlífverum. Miklu skemmtilegra en að sitja og bíða eftir að einhver snyrting klárist eða þannig. Buslið gekk bara vel. Eftir sjávarbaðið var sötrað á heimatilbúnu ekta kakói nýbökuðum vöfflum með rjóma og nýbökuðum pönnukökum líka með rjóma og tilheyrandi.

Allt er nú tilbúið fyrir brottför um næstu helgi. Víkudvöl í landi Pólverja en svo hefst aðalævintýrið, að busla með krókódilunum og sofa með snákum og öðrum skemmtilegum dýrategundum  lengst inni frumskógi langt frá því sem við köllum nútíma siðmenningu.

 


Dagurinn í dag

var barasta fínn. Gerði engin skammarstrik af mér,var bara hinn rólegasti enda föstudagur og helgi framundan + 3 næturvaktir. Lét plata mig i að spila á netinu Civ 4 svona herkænskuleik Gekk vel í upphafi Hélt frið við alla en réðist svo á Grikki eða Spartverja öllufrekar og gekk illa að eiga við þá en náði á endanum að hernema þá Ekki tók þá betra við Þjóðverjar réðust á mig með fullum styrk og lengi vel leit útfyrir að þeir næðu að þurrka mig út en þá náði ég að finna upp uppfinningu sem kjarnavopn heita og hikaði ég ekki við að beita staðbundnum kjarnastýriflaugum Tryggði mér sigur á endanum. Það er að segja á Þýskurum Fékk í staðinn Breta Frakka Kinverja og Rússa á móti mér og varð ég að gefa eftir og játa mig sigraðan.Þannig enduðu þeir leikar.

Og ein frænkan hringdi Láta vita að mamman væri komin á nýjan bil. Vorum í heimsókn þar fyrir stuttu.Sem mér fannst dálitið neyðarlegt vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við því það var reyndar pabbadagur og pabbinn náttúrulega á staðnum. En hún vildi ekkert vera með honum en var límd við mig allann tímann sem við vorum þar Verð að játa að mér fannst það svolitið erfitt. Hún var sem límd við mig og talaði við mig en varla yrti á hann né vildi vera nálægt honum.

En svona utan dagsskrár Gleðilega helgi


Nýr staðalbúnaður

í bíla ætlaður konum :

 

staðalbúnaður


Lét verða af því

að busla aðeins í stóru sundlauginni hér fyrir utan.Fór ekki langt bara í Hvassahraunið enda langt síðan maður hefur buslað á þeim slóðum. Áttum rólega langa og fína köfun Eftirá var sötrað á kakói með rjóma og nýbökuðum vöfflum með öllu tilheyrandi.

Fékk svo sölumann i heimsókn þó aðeins til að skoða og verðmeta.Ágætt að vita hvað maður getur fengið fyrir íbúðina þegar kemur af því að selja en það á að fara að vinna í því eftir ferðina út. Það varð upp fótur og fit þegar hann birtist Nágrannar komu til að athuga málið og einn bað hreinlega um að selja ekki.

Kvöldinu var síðan eytt í að horfa á erlendar sjónvarpsstöðvar.Fann leið fyrir þá sem vilja sitja við sjónvarpið einir eða einar Skiptið yfir á Discovery um kl 23:00.Þar er þáttur sem heitir Hauntings sem fjallar um staði og atburði með draugagangi og látum Það virkar. 'Atti imbann alveg einn í gærkveldi Var reyndar næstum hættur við sjálfur að horfa en gerði það á þrjóskunni.

Eigið svo góðan fimmtudag öll saman.. 


Bara

rólegt i dag Ferð til sjúkraþjálfarans sem var í styttra lagi og engar rosa píndingar Hann er bara orðinn slakur i þessu.Keypti blek i prentarann sem kostaði meira en sjálfur prentarinn Orðið ódýrara að kaupa prentarann en blekið. Annars gott að frétta Engin tími fyrir busl nóg að gera við að mæta í kaffi og matarboð svona rétt fyrir ferð á erlendar grundur. Og enn var verið að skipuleggja rúnt á landsbyggðina, að þessu sinni á Hekluslóðir. Var það ein af frænkunum eða reyndar sú sama og síðast.En ekki verður þó farið fyrr en eftir heimkomu frá krókódílalandi Var hún alveg sátt við að bíða ef  hún fengi eitthvað sætt að utan.  

 


Það er

hér með sannað að það er vatn á Mars

Water on Mars


Helgarferð.

Lagt af stað laugardagsmorguninn um kl 0800 og haldið til Hveragerðis i pissustopp á 2ur bilum alls 10 manns. Síðan ekið án stopps alla leið að Seljalandsfossi Þar var tekin smá pása.Skógarfoss var næsti viðkomustaður Þar var farið uppá fjall síðan farið alveg uppað fossi.Á bakaleið fóru sumir eða réttara sagt sumar að kasta steinum í ána til að fleyta kerlingar.Ég fann einn góðan flatan stein og kastaði. Þá skeði það að gemsinn sem ég var með í bandi tóks á einhvern dularfullann hátt á loft og fór hraðar en steinninn sem ég kastaði og útí á. Svo ég var barasta gemsalaus það sem eftir var ferðar. Næsti staður var Reynisfjara og Vík.Tekin síðan stefna á Hjörleifshöfða þar sem var matast. Á Kirkjubæjarklaustri var bilunum gefin drykkur sem bensin nefnist. Næsta stopp var svo Jökulárslón Þar kláraðist rafhlaðan í myndavélinni. Ekið síðan til baka til Hvolsvallar þar sem aftur var sett eldsneyti á drekanna.Hella og Þykkvibær voru næstu skotmörk en síðan tekin stefna í bæinn með smá viðkomu hjá vinum og ættingjum þar sem síðbúinn kvöldverður beið okkar Í bæjinn var svo komið um kl 0130 eftir miðnætti.

Gærdagurinn fór svo í þrif á bil, heimsóknir og pökkun í ferðatöskur en senn líður að ferð Kvöldinu eytt í algjörri afslöppun fyrir framan imbakassann og stillingar á nýjum gemsa. 


Semsagt

bilar í framtíðinni eiga eftir að vera með hálfgerða pissubleyju. Minn þarf eina í yfirstærð.
mbl.is Þrír félagar telja sig hafa leyst gróðurhúsavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brottfarartimi

morgundagsins hefur verið ákveðin og er það yfirhershöfðinginn 8 ára frænkan  sem búin er að kveða dóm um það Brottför úr bænum kl 7:30 Og ég sem ætlaði að sofa út. En svona er lifið eins og einhver sagði. Og allt stefnir í köfun sunnudag að öllu óbreyttu Hvar kemur bara í ljós síðar.

Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband