Leita í fréttum mbl.is

Öryggi yngri barna

í skólum hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu er ekkert. Er ekki tími til komin að gera eitthvað róttækt í þeim málum til að auka öryggi barna og herða eftirlit með þeim á skólalóðum.

Á stuttum tíma hef ég heyrt um tvö atvik þar sem reynt var að nema barn á brott. Í fyrra tilvikinu var móðir eins nemanda að koma í skólann þar sem barn hennar hafði veikst til að sækja það.Hún kom að eldri manni sem var að toga unga stúlku útúr anddyri skólans.Þegar hún blandaði  sér í málið rauk hann í burtu. Hann og barnið þekktust ekki.

Seinna tilvikið. Sendibilstjóri veitti því athygli að tveir menn leiddu unga stúlku á milli sín á skólalóð. Þegar þeir urðu þess varir að hann fylgdist með þeim ruku þeir á brott og skildu grátandi stúlkuna eftir á lóðinni. Hún hafði ekki þekkt hvorugan en annar þeirra narraði hana að sér með sælgæti.

Sýnir að eftirliti og öryggisgæslu er ábótavant í og við skólanna.

Þriðja dæmið nýskeð og persónulegt en sýnir alvarleika málsins kannski best svo ég læt það flakka hér með. Þetta skeði núna bara í síðustu viku. Ein af frænkum mínum 8 ára gömul var í skólanum og var ein inni í einni stofunni þegar ungur maður kom inn og bauð uppá sælgæti Sem hún neitaði.Hann dró hana þá útúr stofunni þar sem annar beið grímuklæddur Báðir ná að koma henni út úr skólanum og út á skólalóð þar sem aðrir tveir hettuklæddir svartir á hörund voru fyrir.Andlitin voru hulin en hendurnar ekki því sá hún hörundslit þeirra. Tveir hvítir íslenskumælandi tveir enskumælandi svartir. Það sem bjargaði henni var að hún var róleg,og hún notaði  þjálfun sína í sjálfsvarnartækni og komst undan þannig. Ég er reyndar stoltur af henni að hafa sýnt fram á að hún hafi tekið þjálfunina alvarlega. Forsaga þess er reyndar sú að ég giftist í hermannafjölskyldu og tengdó var ekki alveg sáttur við mitt reynsluleysi og kom mér í 8 vikna herþjálfun þar sem meðal annars var kennd árása og varnatækni án vopna. Hér heima kom það síðan einhverntímann uppá yfirborðið að ég hafði lært þetta og frænkustóðið þar að segja tvær af þeim vildu læra.Móðir annars þeirra fannst það sóun að læra slíkt en þær ýttu á svo úr varð að ég kenndi þeim fáein hermennskufantabrögð. Nú kom það í ljós að það borgaði sig og það bjargaði henni frá verri hlutum.

Er ekki komin timi á breytingar setja upp til dæmis hlið upp við skólalóðir (er sumstaðar erlendis)þar sem allir sem erindi eiga i skólann eða á skólalóð þurfa að fara í gegnum og gera grein fyrir veru sinni þar.Þarf ekki einu sinni að vera hlið.Gæti verið vörður við inngang og nemendur og starfsfólk skólans gætu verið með einkennisskirteini með mynd á sér á áberandi stað Foreldrar og forráðamenn gætu einnig verið með auðkenni á sér og þeir aðrir sem ekki hefðu slíkt auðkenni yrðu að gera grein fyrir ferðum sínum áður en þeim yrði hleypt inn. 

Að grímuklætt lið geti verið útifyrir á skólalóð og meir að segja inni í skólanum án þess að engin skipti sér af sýnir hversu örugg börnin eru. Ég kalla á hert eftirlit skólayfirvalda.Þessi þrjú börn sem sagt var frá hér að ofanverðu voru heppin. En hvað með það næsta? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Þetta er skelfilegt að maður getur ekki verið öruggur um barnið sitt við skólana. Það er sorglegt að menn skuli hafa svona hugsunarhátt, við verðum að grípa til aðgerða þannig að börnin okkar geti verið öruggari, hver leiðin er veit ég ekki en það er alveg klárt að við megum engan tíma missa

Kristberg Snjólfsson, 21.1.2008 kl. 10:02

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er skelfilegt hvað er í gangi hér á landi  börnin eru ekki örugg lengur. Það verður að stoppa svona óþverra og það strax.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.1.2008 kl. 10:21

3 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Þetta er alveg skelfilegt hvernig Ísland er að verða. Öryggi barnanna verður að auka og eftirlit við skólana einnig. En það verður líklega ekkert gert í þessum málum fyrr en eitthvað alvarlegt gerist. Þannig að um að gera að blogga um þetta og þrýsta á, vekja athygli á þessu. Eigðu góðan dag, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 21.1.2008 kl. 12:01

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég sit hér fyrir framan tölvuna og er að velta fyrir mér hvort að þú búir á Íslandi eða einhverstaðar í Ameríkunni

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.1.2008 kl. 16:22

5 Smámynd: Ólafur fannberg

bý á klettinum kalda á miðju Atlanshafi

Ólafur fannberg, 21.1.2008 kl. 17:22

6 Smámynd: Ólafur fannberg

Ingunn það er rétt það þarf hræðilegan atburð til að eitthvað verði gert í svona málum hér á landi. Kerfið er seint að taka við sér til að fyrirbyggja nokkuð nema eitthvað skeður til að ýta við því

Ólafur fannberg, 21.1.2008 kl. 17:25

7 Smámynd: Hulda Dagmar Magnúsdóttir

Veistu, að ég er svottan græningi að ég er bara alveg kjaftstopp yfir þessum óhugnaði.

Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 21.1.2008 kl. 21:16

8 Smámynd: www.zordis.com

Litla frænkan þín er algjör hetja.  Hvernig má það vera að ókunnir aðilar komist upp með það að fara inn í skólahúsið?

Ef að yfirvöld gera ekkert í málinu þurfa foreldrafélög að gera eitthvað róttækt til að verja börnin.  Hvurslags viðbjóður er þetta eiginlega.

www.zordis.com, 21.1.2008 kl. 21:52

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta er ægilegt. Óli minn ég hef aldrei séð svona langa færslu hjá þér en ég skildi hvers vegna þegar ég fór að lesa. Ég veit hve annt þér er um litlu frænkurnar. Þetta eru góðar hugmyndir sem þú hefur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.1.2008 kl. 22:44

10 identicon

Váá - ég á ekki til orð - ég á ekki börn sjálf en ég á 12 stk. systkinabörn sem ég mundi vaða eld og brennistein fyrir. Ég get ekki lýst óhugnaðinum sem greip mig þegar ég las þetta.  Augljóst er að eitthvað verður að gera til að auka öryggi barna hér á landi-allt sem hefur komið hér fram eru góðar hugmyndir.  Tímabært að vekja athygli á þessu.

Kveðja

Dísaskvísa

Dísaskvísa (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 23:43

11 Smámynd: Ólafur fannberg

Jórunn það hefur örugglega ekki farið framhjá neinum að mér er annt um litlu frænkurnar og mér er lika annt um öryggi barna í skólunum þar sem þau eiga að vera örugg en dæmin sýna að svo er ekki. Ísland er orðið fjölþjóðaland með öllu því sem því fylgir og við verðum að fyrirbyggja allar hættur sem fyrst.

Ólafur fannberg, 22.1.2008 kl. 00:06

12 Smámynd: Ólafur fannberg

góð hugmynd þetta með undirskriftarlistann og jú jú mátt alveg nefna mig á þínu bloggi

Ólafur fannberg, 22.1.2008 kl. 03:36

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég var ekki búin að ná að fara í gegnum þessar færslur.

Það er sorglegt til þess að vita að börn geta ekki verið örugg í skólanum.Og ég verð ösku reið að til séu svona helvítis ómenni.Það á ekkert að þurfa stranga löggæslu við skóla.Starfsfólk skólanna er auðvitað jafn grandalaust og almenningur.

En það er ljóst að eitthvað verður að gera til að vernda börnin fyrst svona er komið.......

Solla Guðjóns, 24.1.2008 kl. 09:30

14 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Óli ég er sammála, börnin okkar verða að vera örugg.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 25.1.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband