Leita í fréttum mbl.is

Hrekkur

gærdagsins var meiriháttar hryðjuverkaaðgerð.Einn félagi minn nýbúinn að kaupa nýjan fjölskyldubifreið en veikur fyrir bifhjólum ákvað að hrekkja konuna sína heldur betur og fékk mig í málið enda sérfræðingur i púkaskap. Reddaði bifhjóli.Földum fjölskyldubilinn.Svo þegar konan kom heim sá hún myndarlegt bifhjól standa við íbúðina en engan bil. Félaginn sagði svo að hann hefði ákveðið að skipta á bilnum og hjóli. Sú var allsekki sátt og var á augabragði alveg tilbúinn í grimmar hernaðaraðgerðir og senda kauða í hraðferð á gjörgæslu. En róaðist pínu þegar í ljós kom að billinn var á sínum stað og þetta var allt saman einn stór hrekkur.Hún sakar mig að vísu að hafa átt hugmyndina af þessu,mig sárasaklausan sem gerir engu mein ekki einu sinni silfurskottu.

Önnur saga af sama félaga..Á heimleið úr köfun einn sumardag ákvað hann að hringja í kellu og bjóða henni út. Hún dressaði sig upp.Og þegar í bæjinn var komið var hún sótt og haldið niðrí bæ Þar var farið beinustu leið á bæjarins bestu og keyptar SS-pylsur með öllu. Ein var í mjög hættulegu skapi það sem eftir var dags...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Æ, maður hrekkir ekki konuna sína svona ... er ekki sniðugra að vera með REIÐHJÓL fyrir utan ... ehhehehehe. Þið eruð meiri skepnurnar!

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2007 kl. 09:53

2 Smámynd: Ólafur fannberg

ég er alveg saklaus...alveg satt spurðu bara........einhvern

Ólafur fannberg, 5.5.2007 kl. 09:59

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ææææ, en það er gaman að hlæja.

Ljós til þín !

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.5.2007 kl. 11:50

4 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

hahaha, gaman að stríðnispúkum

Jóhanna Fríða Dalkvist, 5.5.2007 kl. 12:06

5 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

held að þú getir ekki sannfært einn eða neinn um að þú sért saklaus

Kristberg Snjólfsson, 5.5.2007 kl. 12:11

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég hefði nú verið alveg sátt við hjólið.....

Hrönn Sigurðardóttir, 5.5.2007 kl. 12:36

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Strákar strákar!!!!!!Svona hrekkir maður ekki konuna sína,meina þetta með bæjarins bestu..........Hitt hrekkjabragðið er náttúrulega bara snilld

Solla Guðjóns, 6.5.2007 kl. 12:25

8 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Hjólið - frábært, en pylsan - algjört bann, spáðu í hvað hún eyddi miklum tíma í að punta sig fyrir hann !

Ósk Sigurðardóttir, 6.5.2007 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband