Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

svo svona

c_documents_and_settings_smfr_borgarholtsbrau_my_documents_huffaker.gif
smá páfagrín í lok vaktar og byrjun helgarfrís....semsagt komin á svarta lista þeirra þarna austurfrá

opið bréf...skyldulesning..

Rak augun á þetta og varð að setja þessa snilld hingað....:

opið bréf til Gunnars i krossinum Jón Vals og annarra bókstafstrúarmanna sem hafa sannleikann sín megin..

Kæru bókstafstrúarmenn

kærar þakkir fyrir að upplýsa almenning á íslandi varðandi guðs lög sem og um sannleikann.Það er ljóst að það er margt sem maður getur lært frá ykkur - vitrari mönnum- og ég reyni t.d að miðla ykkar fróðleik eins víða og ég get þar sem ég tel ykkur vera eins og þið segið - boðberar sannleikans i einu og öllu. Það er hinsvegar nokkur atriði sem ég þarf aðstoð við varðandi guðs orð því eins og þið bendið á er sannleikurinn að finna i guðs orði sem og orð guðs er óbreytanlegt og eilift. Eftir að hafa lesið guðs orð undanfarið langar mig til að biðja ykkur að fræða mig aðeins um eftirfarandi:

1.Mig langar að selja dóttur mina í þrældóm eins og leyft er í Exodus 21:7 - hvað teljið þið eðlilegt markaðsverð fyrir hana 16 ára og gullfalleg þið eruð jú sérfræðingarnir hérna

2.Ég veit að ég má ekki hafa neitt samband af neinu tagi við konu á meðan hún er á túr sbr. Lev 15:19-24...vandamálið er hvernig á ég að segja konunni þetta ? Virðast flestar bara móðgast.

3.Í Lev25:44 segir skýrt að ég megi hafa þræla - bæði karla og konur svo framalega sem þeir séu keyptir frá nágrannalöndum okkar Vandamálið er að ég er hrifinn af þjóðverjum og því langar mig að spyrja af hverju ekki ég megi ekki eiga þræla frá þýskalandi þótt það sé ekki nágrannaland okkar?

4.Ég á vin sem vinnur á "Sabbath"deginum Í Exodus 35:2 segir skýrt að hann skuli vera tekinn af lífi fyrir slíkan óhæfuvrknað. Er ég skyldugur til að drepa hann sjálfur eða get ég eftirlátið öðrum það?

5.Í Lev 21:20 segir skýrt að ég megi ekki nálgast altari guðs hafi ég sjónskekkju þ.e. ekki fullkomna sýn Margir vina minna nota lesgleraugu er ekki eitthvað svigrúm hérna svo þeir geti nálgast altari guðs?

6.Flestir vina minna karlkyns fara i klippingu og snyrta nefhár osvfr. þrátt fyrir að þetta sé stranglega bannað samkvæmt Lev 19:27. Á hvern hátt ber að taka þessa menn af lífi?

7.Frændi minn er bóndi og því miður brýtur hann Lev 19:19 þar sem hann er með 2 uppskerur á sömu jörð Konan hans brýtur einnig sama ákvæði með því að nota 2 mismunandi efni í fötin sín polister/cotton Hann blótar einnig og rífur kjaft Er það virkilega nauðsynlegt að  safna öllum þorpsbúum til að grýta þau til bana eins og segir í guðs orði (lev 24:10-16) Er ekki bara hægt að brenna þau til dauða innan fjölskyldunnar eins og við gerum með fólk sem sefur hjá ættingjum sínum?

Ég veit að þið hafið skoðað og lært þessar kenningar í einu og öllu svo ég er sannfærður að þið getið hjálpað. Og síðast og ekki síst - bestu þakkir fyrir að benda okkur á að guðs orð er +OBREYTANLEGT OG EILÍFT..

bestu kveðjur

hinn fáfróði.....

 

 


« Fyrri síða

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband