Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Búinn að

ákveða það að eta ekki nema tilneyddur kæsta skötu.Fyrr skal ég eta allt annað. Varð vitni af því i gær er einn góður félagi ákvað að reyna i fyrsta sinn að eta þetta límkennda fyrirbrigði og stóð sig bara nokkuð vel miðað við allt táraflóðið sem fylgdi (hann býr ekki á Selfossi) Mér leist svo ekkert á þetta og líka lyktin útilokaði frekari tilraunir. Fyrr treð ég mér inn í geislavirkann kjarnaofn, dansa can can uppá borði treð fingrunum uppí hákarl strippa áður en þetta kvikindi fer uppí mig og hananú..

Hér er

ríkjandi sterk skötulykt og ég er búinn að setja upp gasgrímuna og klæðast geislavarnabúningi til að lifa af. Játa hér með að ég hef aldrei sett skötu inn fyrir mínar varir Oft ætlað að gera það en góða sterka lyktin hefur hingað til stöðvað frekari tilraunir. Verð örugglega fyrr til að vaða inn í geislavirkann kjarnaofn en að eta skötu...Svo má lika segja það að ég et ekki vini mína hehehe allavega ekki suma.

Enn

rignir og billinn orðinn tandurhreinn Segið svo að það sé ekki hægt að virkja veðurguðina til vinnu rigningin kom i stað kranavatns og vindur sá um starf kústsins og ég sjálfur gerði ekki handtak,annað en það að hanga inni hehehe..Annars mætti alveg fara að skrúfa fyrir sturtuna þarna uppi..allavega að loka fyrir vindgustinn en útlitið er samt að áframhald verði á þessu.

hehe

rigning og rok í dag Semsagt slepp að þvo bilinn sjálfur, sjálfvirk veðurhreinsun. Er líka í fríi hehehe.....

Jólakveðja

jólasveinn á ferð
til allra bloggvina og annara bloggverja

Búið að

vera annasamt...Fyrst var væntanlegri bað ferð okkar Kela frestað því i ljós kom að loks þegar búið var að redda græjum vantaði loft á kúta. Reddaði loks varalyklinum fyrir bilinn svo það mál er klárað.Síðan er búið að vera á fullu í að klára allann jólaundirbúning og gera sjóklárt fyrir þau. Klára jólakort og hluti sem gleymdust. Og fara með þær tékknesku á jólaskemmtanir og svo framvegis......

Búinn

að sitja starfmannafund i allann dag skyldumæting þó ég væri i frii Datt reyndar fljótlega út og var litið að hlusta á ræðumenn. Síðan var farið i 50 ára afmæli þar sem við tók karókí dauðans.Sumir eða öllufremur sumar tóku uppá því að söngla karókí og það var algjör hryllingur Breima köttur tekur þetta betra. Var einnig að vinna i að redda búnaði fyrir köfun á morgun og allt er komið nema það allra nauðsynlegasta loft.....en það reddast.....hafðisamband við gamla köfunarkennarann minn sem ætlar að redda málinu ....

var að taka eftir því að við hverja einustu færslu sem ég hef fært hingað til inn í desember hefur verið kómenntað við....á ekki orð annað en vá....og reyndar annað orð líka TAKKSmile

Sýnir að það eru þá einhverjir sem lesa vefrausið mitt hehehehe.........


Var að

skríða á land eftir næturrölt á hafsbotni...Buddyinn gleymdi fitunum sínum svo ég lánaði mín Það þýddi að ég varð að nota gamla lagið hreinlega að labba eftir botninum eða valhoppa svipað og geimfarar gerðu á tunglinu forðum...Annað sinn sem ég geri þetta og í þetta sinn var engin óvænt brekka á leið minni eins og forðum Dáldið óvenjuleg en samt skemmtileg köfun.....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur fannberg
Ólafur fannberg

lifrænt ræktuð geimvera með skoðanir á öllu sem engu skemmtilegu sem leiðilegu og á það til að láta allt vaða. Er bogamaður.

olafurfa@simnet.is +olafurfa@gmail.com

Nýjustu færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband